Heim / Lan-, online mót / cG komnir í Semi-Finals | Glæsilegur árangur hjá flottu liði
Hverju viltu fylgjast með?  Þitt er valið

cG komnir í Semi-Finals | Glæsilegur árangur hjá flottu liði

Úrslit úr fyrsta level í mappinu Teheran Highway

Íslenska Battlefield 3 liðið Catalyst Gaming (cG) er komið í sem finals í online mótinu Spring cup 2012 eftir sigur þeirra við liðið Massive Rampage (MR) í gær, en keppt var í möppunum Tehran Highway og Seine Crossing.

“Notuðumst við nýja tactic í Tehran í þetta skiptið. Vill helst ekki segja of mikið hvernig það spilaði út fyrir sig en vorum með 3 í tank og 5 í APC.  Snérist þetta bara um að reyna ná A og C í byrjun og allt gekk vel!  Strákarnir í Infantry deildinni stóðu sig mjög vel og við í farartækjunum vorum alltaf á tánum”, segir Muffin-King á spjallinu um leikinn þeirra í gær við Massive Rampage.

Úrslit úr seinni level í mappinu Teheran Highway

Úrslit úr fyrri leiknum:
1st Round sem US : 148 – 0
2nd Round sem RU: 97- 0

Því næst var keppt í mappinu Seine Crossing og eins og venjan er hjá Catalyst Gaming meisturunum, þá var tankurinn þeirra á Main road að hjálpa til að ná þeim 2 bases sem eru þar, og á meðan Infantry menn hömuðust í kringum A og C.

“Fengum bara að spila eitt round sem RU þar sem þeir gáfu seinna roundið því klukkan var orðin of margt fyrir þá.. (eða svo segja þeir.)”, segir Muffin-King á spjallinu.

Úrslit úr seinni mappinu Seine Crossing

Úrslit úr seinni leiknum:

1st Round sem RU: 143 – 0
2nd Round sem US: -MR- gaf roundið. 250 – 0

Lokastaða varð 638 – 0 Catalyst Gaming í vil, glæsilegur árangur hjá cG mönnum.

Stjórnendur Clanbase eru greinilega ánægðir með CG strákana

“Þessi var stórskemtilegur. Persónulega fíla ég svona Ground-Vehicle/Infantry möpp.  Sjálfur var ég í APC að hjálpa infantry liðinu og að flanka bases.  -MR- var hörkulið og vissi nú nokkuð hvað þeir voru að gera, en því miður var það ekki nóg til að stoppa Þursinn úr norðri; Catalyst Gaming.”, sagði Muffin-King að lokum á spjallinu, en cG er með fullt hús stiga í mótinu í sínum riðli 4-0-0 og eru þar af leiðandi komnir í SEMI-FINALS í Winner Bracket.

Myndir: clanbase.ggl.com

Fylgstu með eSports.is á facebook hér.

eSports.is – Platoon/Group á Battlelog

Um Chef-Jack

Chef-Jack er matreiðslumaður að mennt og hefur verið með pennann á lofti til fjölda ára og skrifað mikið um tölvuleiki og allt sem snýr að Íslensku tölvuleikjasamfélaginu. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara

x

Check Also

Solid Clouds forsýnir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers

Solid Clouds forsýnir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers

Solid Clouds býður hluthafa sína ...