Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Complexity segir skilið við Counter-Strike eftir tvo áratugi
    Passion UA
    Passion UA sameinar leikmenn úr fyrrum Complexity og er tilbúið í næsta verkefni.
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Complexity segir skilið við Counter-Strike eftir tvo áratugi

    Chef-Jack21.08.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Passion UA
    Passion UA sameinar leikmenn úr fyrrum Complexity og er tilbúið í næsta verkefni.

    Eftir rúmlega tuttugu ára viðveru á sviði Counter-Strike hafa stjórnendur bandaríska félagins Complexity ákveðið að hætta keppni í CS2. Ástæðan er sögð fjárhagslegur þrýstingur sem hefur gert reksturinn óviðráðanlegan.

    Félagið var stofnað árið 2003 og hóf keppni í Counter-Strike árið 2004. Á þessum tveimur áratugum hefur liðið unnið til margvíslegra verðlauna og sigra í stórmótum. Þar má nefna sigurinn í BLAST Premier Spring 2020 European Finals skilaði Complexity 335 þúsund Bandaríkjadölum sem samsvarar um það bil 46,2 milljónum íslenskra króna.

    Complexity tók þátt í fjölmörgum CS2 mótum á þessu ári, þar á meðal á IEM Katowice, Melbourne, Cologne og PGL Bucharest. Besti árangurinn var fjórða sæti í Rúmeníu en liðið náði ekki að festa sig í sessi í fremstu röð. Messioso, framkvæmdastjóri liðsins, sagði að frammistaðan eftir Melbourne hefði átt að vera betri.

    An update from @JasonBWLake pic.twitter.com/C6MQxk44Zr

    — Complexity (@Complexity) August 19, 2025

    Jason Lake, stofnandi Complexity, greindi frá því að ákvörðunin hefði verið óhjákvæmileg:

    „Eftir mjög sterkt ár 2023 og 2024 hefur árið 2025 reynst erfitt í efnahagslífi rafíþrótta. Við höfum einfaldlega ekki getað aflað nægilegra tekna til að styðja við Tier 1 liðinu,“

    sagði Lake. Hann bætti við að þó unnt hefði verið að teygja lopann lengur vildi hann „gera rétt gagnvart leikmönnunum“. Engar áætlanir eru til um endurkomu fyrr en fjárhagsstaðan batnar.

    MEET THE NEW PASSION UA ROSTER 🔥

    We are writing the next page of our history, the updated roster is ready to fight for every round and prove that true passion always finds a way.

    • Roster:
    🇿🇦 @JTcsgo
    🇺🇦 @Kvem_csgo
    🇳🇴 @hallzerk
    🇺🇸 @1grimcs
    🇺🇸 @nicxCS

    • Coach:
    🇿🇦 @DrTcCs… pic.twitter.com/8IpxDOB4EH

    — PassionUA.gg (@PassionuaGG) August 19, 2025

    Á sama degi og tilkynningin var gefin út greindi úkraínska félagið Passion UA frá nýrri leikmannahópnum sínum. Félagið, sem stofnað var af knattspyrnumanninum Oleksandr Zinchenko, hefur fengið kjarnann úr liðinu sem áður bar liti Complexity. Þar eru Johnny „JT“ Theodosiou, Håkon „hallzerk“ Fjærli, Michael „Grim“ Wince og Nick „nicx“ Lee, sem allir sameinast fyrrverandi þjálfara sínum, Tiaan „T.c“ Coertzen, sem yfirgaf Complexity í mars.

    Hópurinn er fullmótaður með Vladyslav „Kvem“ Korol sem kom til Passion í ársbyrjun. Bandaríski leikmaðurinn Danny „Cxzi“ Strzelczyk stendur hins vegar utan liðs, en hann hefur sett sig á frjálsan markað og lýst yfir áhuga á að halda áfram keppni í Norður-Ameríku eða Evrópu.

    Hello,
    I’ve been released from @Complexity as they are no longer staying in CS so I am now a free agent. Really grateful for the opportunity to work with everyone and be apart of this. Good luck to them.

    For the future I am looking for NA or EU options. My recent performance…

    — Danny (@CxziDanny) August 19, 2025

    Passion UA ætlar sér að láta til sín taka strax, en nýja liðið keppir á StarSeries Fall mótinu í Búdapest í næsta mánuði. Þar fær það tækifæri til að mæta sterkum liðum á borð við Natus Vincere, B8 og Ninjas in Pyjamas.

    Mynd: x.com / Passion UA

    BLAST Premier Spring Complexity counter strike Counter Strike 2 Danny „Cxzi“ Strzelczyk Håkon „hallzerk“ Fjærli Johnny „JT“ Theodosiou Michael „Grim“ Wince Nick „nicx“ Lee Passion UA StarSeries Vladyslav „Kvem“ Korol
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.