Nýr tölvuleikur frá þróunarteyminu Triple Espresso, Copa City, kemur út 26. mars 2026 og býður leikmönnum að stíga inn í þá flóknu og oft ósýnilegu vinnu sem liggur að baki stórum knattspyrnuviðburðum. Leikurinn sameinar stjórnun á borg og viðburðastjórnun á lifandi og nútímalegan hátt, þar sem markmiðið er að tryggja að leikdagurinn verði bæði öruggur og ánægjulegur fyrir alla sem að honum koma.
Í Copa City fær leikmaðurinn fullt ákvörðunarvald yfir allri skipulagningu. Þar tekur hann við stjórn á leikvangi og innviðum borgarinnar, skipuleggur flæði fólks, velur leiðir fyrir stuðningsmenn og lið, sér um öryggismál og tryggir að allt sé tilbúið áður en leikurinn hefst, að því er fram kemur í tilkynningu frá Triple Espresso.
Hver borg, hver viðureign og hvert lið hefur sín sérkenni, sem krefjast þess að leikmaður bregðist rétt við og haldi yfirsýn yfir fjölbreytt verkefni undir tímapressu.
Leikurinn byggir á raunverulegum borgum og félögum. Fyrsta leiksvæðið er Varsjá í Póllandi og síðar verða kynntar tvær aðrar borgir. Þar geta leikmenn boðið sex knattspyrnuliðum í heimsókn, þar á meðal Arsenal FC, FC Bayern München og CR Flamengo.
Hvert félag kemur með eigin stuðningsmannamenningu, liti og hegðunarmynstur sem hafa áhrif á áskoranir dagsins. Markmiðið er að tryggja jafnvægi milli öryggis og góðrar upplifunar fyrir bæði gesti og íbúa borgarinnar.
Copa City leggur áherslu á að skapa heildræna upplifun af leikdegi, þar sem skipulagning og tilfinningaleg stemning fara saman. Borgin tekur smá saman á sig svip hátíðarinnar, án þess að daglegt líf þeirra sem ekki sækja leikinn raskist.
Leikurinn minnir á að undirbúningur er aðeins hluti verkefnisins, en hjarta viðburðarins liggur í þeirri upplifun sem myndast þegar leikurinn hefst.
Áður en stúkan fyllist þarf þó að tryggja að allt standist kröfur. Borgarrými er mótað, aðstaða fjölmiðla undirbúin, aðdáendasvæði sett upp og kynningar styrktaraðila stilltar fram í samræmi við reglur. Leikmaðurinn stýrir öllum þáttum og þarf að vera viðbúinn óvæntum aðstæðum sem geta komið upp þegar þúsundir áhorfenda leggja leið sína á völlinn.
Copa City verður gefinn út á PC, Xbox Series X|S og PlayStation 5.
Myndir: aðsendar / Triple Espresso









