Dreamhack er stærsta tölvuleikjaveisla Norðurlandanna. Þar koma saman þúsundir gesta alls staðar úr heiminum til þess að prófa nýjustu tölvuleikjatækni, upplifa fjölbreyttar sýningar á Indie-leikjum, heimsækja skapandi listasvæði, fylgjast með lifandi tónleikum og njóta litríkrar cosplay-menningar.
Á hátíðinni gefst gestum kostur á að taka þátt í einu stærsta LAN-partýi heims, þar sem þátttakendur koma með eigin tölvubúnað og spila allan sólarhringinn í einstakri stemningu.
Á sama tíma fara fram fjölmargar alþjóðlegar keppnir í rafíþróttum, þar á meðal úrslitameistarakeppnir í Overwatch, Counter-Strike 2 og fleiri vinsælum leikjum, með stærstu liðum heims í baráttu um milljónir evra í verðlaunafé.
DreamHack Stockholm, sem fram fer í Stockholmsmässan, stærsta sýninga- og ráðstefnuhús Svíþjóðar, staðsett í Alvsjö, rétt sunnan við miðborg Stokkhólms, er einstök upplifun fyrir alla sem vilja kynnast stærstu og fjölbreyttustu leikjamenningu Evrópu á einum stað.
Hér skapast minningar, tengslanet og innblástur sem fylgir gestum langt út fyrir hátíðina sjálfa.
Stockholmsmässan
Icelandair býður upp á frábæra pakkaferð með flugi og hóteli 27. nóvember til 1. desember, fjórar nætur með morgunverði innifaldar.
Sjáðu stemninguna frá DreamHack Stockholm í fyrra:
Myndir: dreamhack.com





