
Mynd: x.com / @drewlevin
Árið 2025 hefur reynst viðburðaríkt í baráttunni gegn svindli í League of Legends og þar hefur eitt nafn skorið sig sérstaklega úr. Drew Levin, yfirmaður vörustefnu og þróunar hjá Riot Games, hefur eytt stórum hluta ársins í að taka opinberlega á svindlurum, smurf-reikningum og sölu á aðgöngum að leiknum. Ekki í lokuðum yfirlýsingum eða þurrum tilkynningum, heldur beint á X, áður þekkt sem Twitter.
Drew varð sífellt háværari á samfélagsmiðlum þegar leið á árið og lét ekki deigan síga þegar kom að því að svara leikmönnum sem að hans mati voru hluti af vandanum sem hefur spillt milljónum leikja. Hvort sem um var að ræða vísvitandi rangfærslur, réttlætingar á smurf-notkun eða einfaldlega slæmt viðhorf, þá komu svör hans beint í mark.
Þar sem allt hófst
Upphafið má rekja til ágúst mánaðar þegar Drew svaraði ADC-spilara sem hélt því fram að Ashe væri veik hetja. Í færslu sem vakti mikla athygli tók Drew þessa fullyrðingu í sundur af beinskeytni sem LoL-samfélagið hafði ekki vanist frá stjórnendum Riot. Færslan, sem birtist í svari við innlegg frá ProjectAsheNA á X, kveikti keðjuverkun.
HELLO @RiotPhroxzon @RiotPhreak CAN WE PLEASE FIX ASHE
THIS IS HER WEAKEST STATE IN HER ENTIRE PATCH HISTORY
& CRIT ADCS IN GENERAL R WEAK AF
REVERT THE CRIT ADC & CRIT ITEM NERFS ASAP pic.twitter.com/lbxM4g4JvZ— Joshua Waldow (@ProjectAsheNA) August 6, 2025
Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Spilarar fögnuðu hreinskilninni og áður en langt um leið var Drew orðinn eitt umtalaðasta nafn samfélagsins. Hann sjálfur benti síðar á í annarri færslu að þessi opna samskiptaaðferð hefði óvænt gert hann að eins konar talsmanni Riot á X, hvort sem það hefði verið ætlunin eða ekki.
well this was a fun day on the internet
hello to a lot of new friends and gamers
excited to chat with y’all about league and various other things
I will have to figure out how to manage my notifs and mentions, but legit loving the range of chats so far
— Drew Levin is on vacation (see 📌) (@drewlevin) August 7, 2025
Smurf-reikningar teknir föstum tökum
Nokkrum dögum síðar tilkynnti Riot Games auknar aðgerðir gegn smurf- og aukareikningum, vandamáli sem lengi hefur nagað leikinn. Leikmenn sem hafa hlotið bann hafa getað haldið áfram eitraðri hegðun á nýjum reikningum, á meðan mjög færir leikmenn hafa vísvitandi spilað á lægri styrkleikastigum til að „finna sig aftur“.
Drew var lykilaðili í þessari stefnumótun og lagði áherslu á að vandinn yrði ekki leystur með skyndilausnum. Í færslu á X sagði hann að ekki væri hægt að laga leikinn með smáviðgerðum, heldur þyrfti heildstæða nálgun til að bæta gæðin.
„Við sjáum þetta sem heildrænt vandamál sem þarf að leysa með heildrænni nálgun. Þetta er einn liður í því,“
skrifaði hann.
I dislike how disrespectful smurfing is of the enemy team’s time. if I queue in ranked, I expect i’m 50% to win at baseline. if someone in my lobby is secretly chall, I definitely don’t have 50% to win. If I knew that beforehand I would not have queued for the game.
fair or no? https://t.co/u4mtm35Buw
— Drew Levin is on vacation (see 📌) (@drewlevin) August 6, 2025
Þessi orð, ásamt hörðum en markvissum aðgerðum, hafa gert Drew að nokkurs konar óvæntri hetju League of Legends samfélagsins árið 2025. Fyrir marga leikmenn hefur hann orðið tákn þess að Riot sé loks tilbúið að tala skýrt, axla ábyrgð og standa með þeim sem vilja sanngjarnt og heilbrigt keppnisumhverfi.



