Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Eldar fyrir hetjur rafíþróttanna – Einkakokkur T1 opinberar leyndarmál eldhússins – Vídeó
    Eldar fyrir hetjur League of Legends – Einkakokkur T1 opinberar leyndarmál eldhússins
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Eldar fyrir hetjur rafíþróttanna – Einkakokkur T1 opinberar leyndarmál eldhússins – Vídeó

    Chef-Jack18.07.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Eldar fyrir hetjur League of Legends – Einkakokkur T1 opinberar leyndarmál eldhússins
    Leikmenn T1 í League of Legends njóta máltíðar í höfuðstöðvum liðsins í Gangnam.
    Yfirkokkur liðsins, Alex Kim, sér um næringu leikmanna og tryggir að hver einasta máltíð styðji við afköst og heilsu þeirra í harðri keppni í efstu deild heims.
    Mynd: skjáskot úr myndbandi

    Bak við sigurgöngu eins frægasta rafíþróttaliðs heims, suðurkóreska liðsins T1, stendur maður sem starfar fjarri sviðsljósinu – en gegnir lykilhlutverki í árangri þess. Það er Alex Kim, yfirkokkur T1, sem ber ábyrgð á næringu og daglegum mat fyrir alla leikmenn félagsins – þar á meðal heimsþekkta leikmenn á borð við Faker, Keria, Zeus, Oner og Gumayusi sem keppa í leiknum League of Legends.

    Í myndbandi sem vakið hefur verðskuldaða athygli fá áhorfendur innsýn í störf Alex á höfuðstöðvum T1 í Gangnam-hverfinu í Seoul. Þar stjórnar hann eldhúsi sem þjónar ekki aðeins League of Legends-liðsins heldur einnig starfsfólki og öðrum deildum félagsins. Honum til aðstoðar eru tveir aðstoðarkokkar, Jun og Jake.

    Alex leggur metnað í fjölbreyttan og næringarríkan matseðil sem spannar kóreska, japanska, ítalska og vestræna matargerð. Allt er sérsniðið að þörfum atvinnuleikmanna sem þurfa á jafnvægi, einbeitingu og líkamlegri vellíðan að halda á hárréttu augnabliki – ekki síst fyrir stórviðburði.

    „Það sem situr mest eftir er hversu mikla alúð og kærleika Alex leggur í hverja máltíð. Þetta er ekki bara eldamennska – þetta er umhyggja og fagmennska á hæsta stigi,“

    segir höfundur myndbandsins, sem dvaldi í heila viku á heimavelli T1 til að fylgjast með daglegu lífi liðsins.

    T1 er þekkt fyrir faglega umgjörð og metnaðarfulla nálgun á öllum sviðum starfseminnar, og það kemur því ekki á óvart að næringarmál leikmanna séu í höndum sérfræðinga. Ábyrgð Alex nær langt út fyrir það að bjóða upp á ljúffengar máltíðir – hann er órjúfanlegur hluti af stuðningskerfi liðsins og tryggir að leikmenn séu bæði líkamlega og andlega vel undirbúnir.

    Myndbandið varpar ljósi á þá menningu sem ríkir innan T1 – þar sem smáatriðin skipta máli og hver einasta máltíð þjónar tilgangi. Það sýnir einnig hvernig matargerð getur orðið órjúfanlegur þáttur í sigri og velgengni, jafnvel í heimi þar sem allt snýst um skjái og hraða ákvarðanatöku.

    Alex Kim League of Legends T1 T1 - Faker T1 - Gumayusi T1 - Keria T1 - Zeus TF - Oner
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.