Håvard „rain“ Nygaard, eitt helsta andlit FaZe Clan í Counter-Strike í tæp 10 ár, hefur verið settur á bekkinn. Tilkynningin birtist í dag bæði frá félaginu og leikmanninum sjálfum, ásamt tilfinningaþrungnu myndbroti sem rifjar upp sigursæla tíma hans innan liðsins.
Thank you, Mr. FaZe Clan ❤️
Family forever @FaZe_rainCS ♾ pic.twitter.com/9RUsiTrZJH
— FaZe Esports (@FaZeEsports) September 29, 2025
Rain þakkaði liðsfélögum, stuðningsfólki og stjórninni fyrir „tíu ógleymanleg ár“ og lagði áherslu á að ferlinum væri langt frá lokum. Hann staðfesti að hann hyggðist halda áfram í keppni og væri opinn fyrir nýjum tilboðum, jafnvel í hlutverki IGL, sem væri honum ný áskorun.
— Håvard Nygaard (@FaZe_rainCS) September 29, 2025
Ákvörðunin kemur í kjölfar leikmannaskipta þar sem Russel „Twistzz“ Van Dulken snéri aftur til FaZe, en Jonathan „EliGE“ Jablonowski gekk á ný til liðs við Team Liquid. Með þessum breytingum lýkur einni lengstu og farsælustu veru einstaklings hjá sama liði í sögu Counter-Strike.
„Håvard verður ávallt goðsögn í FaZe fjölskyldunni,“
sagði félagið í yfirlýsingu.
Samfélagið hefur þegar brugðist við með söknuði og virðingu, enda er erfitt að ímynda sér FaZe án rains á sviðinu. Næstu skref hans eru óviss, en eitt er ljóst: ferðalagið heldur áfram og rigningin er langt frá því að fjara út.
rain leaving FaZe brings an end to one of THE legendary runs in CS history. From blazing the trail for international projects on Kinguin, to G2 which became FaZe – over a decade and over 20 trophies including a major + MVP.
Nobody has done it at a comparable level for longer. https://t.co/U93uKIzLzm
— Travis (@TravCS) September 29, 2025
Mynd: x.com / FaZe Esports




