Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Fyrsta console stríðið lifnar við Atari endurvekja Intellivision
    Fyrsta console stríðið lifnar við Atari endurvekja Intellivision - Intellivision Sprint
    Tölvuleikir

    Fyrsta console stríðið lifnar við Atari endurvekja Intellivision

    Chef-Jack18.10.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Fyrsta console stríðið lifnar við Atari endurvekja Intellivision - Intellivision Sprint

    Leikjafyrirtækið Atari SA hefur opinberað nýja útgáfu af hinni goðsagnakenndu Intellivision-vél, sem kom fyrst út árið 1979. Nýja vélin ber nafnið Intellivision Sprint og markar áhugaverðan kafla í endurvakningu klassískra leikjatölva.

    Intellivision Sprint sameinar gamla sjarma með nútímalegri tækni. Vélin kemur með 45 innbyggðum leikjum, þar á meðal klassískum á borð við Boulder Dash og Astrosmash, auk ýmissa íþróttaleikja sem upprunalega vélin var þekkt fyrir.

    Í tilkynningu kemur fram að tölvan tengist nútímasjónvörpum með HDMI og fylgja henni tvö þráðlaus stjórnborð sem hlaðast í innbyggðri stöð. Einnig fylgja svokölluð „overlays“ eða leikjakort sem sett eru yfir stjórnborðin, líkt og á upprunalegu vélunum, smáatriði sem gleður sanna aðdáendur retro tækni.

    Að auki má tengja fleiri stjórnborð eða bæta við leikjum í gegnum USB-A tengi, og fyrir þá sem enn geyma gömlu Intellivision stýringarnar sínar er boðið upp á sérstakan tengibúnað.

    Intellivision var á sínum tíma helsti keppinautur Atari 2600, og átök þessara tveggja véla markaði fyrstu svokölluðu console wars í leikjasögunni. Með þessari nýju útgáfu er Atari að snúa aftur í hlutverk bæði framleiðanda og arftaka, með markmið um að endurvekja æskuár margra.

    Þó vélin haldi í hefðina er hún hönnuð fyrir nýja kynslóð leikjaáhugamanna. Hún styður ekki upprunalegar leikjakassettur, sem gæti valdið vonbrigðum hjá nostalgíusafnara, en Atari lofar að bjóða fleiri leiki í rafrænu formi síðar á árinu.

    Hvenær kemur vélin á markað?

    Intellivision Sprint er þegar komin í forsölu á vef Atari á 149,99 bandaríkjadali og er væntanleg í verslanir í byrjun desember 2025.

    Vélin hefur þegar vakið mikla athygli á umræðusíðum á borð við AtariAge, þar sem spurt er hvernig nýju stjórnborðin haldi sér í raunverulegri spilun og hvort vélin muni styðja heimagerða leiki í framtíðinni.

    Upprunalega Intellivision-vélin kom út árið 1979 hjá Mattel Electronics og þótti á sínum tíma tæknilega framar flestum keppinautum. Hún bauð upp á fjölbreytt úrval íþrótta- og hernaðartengdra leikja og var fyrsta leikjatölvan með stafrænum talgreinir í sumum leikjum.

    Með nýju Sprint útgáfunni virðist Atari ætla sér að tengja þessa ríku sögu við nútímann. Ekki aðeins til að höfða til safnara, heldur einnig til að kynna nýrri kynslóð hvernig leikjamenningin byrjaði, á tíma þegar píxlar voru stórir, hljóðin skrjáfuð og ímyndunaraflið sá um afganginn.

    Atari og Intellivision í auglýsingastríði ársins 1981

    Í þessu klassíska auglýsingarmyndbandi frá byrjun áttunda áratugarins sér maður blaðamanninn George Plimpton sem fulltrúa Atari mæta til leiks gegn Intellivision-kerfinu, þar sem Intellivision hampar tækni­sigrum sínum, á meðan Atari reynir að halda í forystuna.

    Mynd: atari.com

    Atari Incoming
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.