Starfsfólk á hóteli í Kína, sem hefur byggt starfsemi sína á sérsniðinni þjónustu við spilara og rafíþróttakeppendur, hefur greint frá einu óhugnanlegasta tilviki sem komið hefur upp innan veggja staðarins. Samkvæmt umfjöllun breska slúðurblaðsins The Sun kom í ljós að herbergi gestsins var, sem hafði dvalið þar í heil tvö ár, í algjörri rúst þegar hann loks tékkaði út.
Eins og The Sun greinir frá, hafði maðurinn aldrei hleypt ræstingarfólki inn í herbergið allan tímann. Þegar starfsfólk opnaði dyrnar blasti við þeim sjón sem lýst hefur verið sem martröð. Rusl í hrönnum, klósett umlukið notuðum klósettpappír og þykk, brúnleit skán sem hafði myndast á gólfinu. Starfsfólk hótelsins mun hafa kallað manninn „gestinn frá helvíti“ í samtölum við blaðið.
Grim vid shows hotel guest from hell leave room in stomach-churning state pic.twitter.com/GwT0sWJo2d
— The Sun (@TheSun) December 18, 2025
Samkvæmt frásögn starfsmanna var búnaður herbergisins afskaplega rýr, en það sem þar var til staðar var grafið undir rusli sem sums staðar náði allt að nærri metra hæð. Gesturinn mun hafa yfirgefið herbergið afar sjaldan og margir starfsmenn segjast aldrei hafa séð hann augliti til auglitis. Hann hafi nánast búið í því sem þeir lýstu sem ógeðslegu spilaholunni sinni.
Í umfjöllun The Sun koma þó fáar nákvæmar upplýsingar fram um nákvæma staðsetningu hótelsins, hver gesturinn var eða hvenær atvikið átti sér stað. Þrátt fyrir það virðast birtar myndir hafa brennt sig í minni þeirra sem hafa séð þær.
Hreinsunarstarfið tók að sögn þrjá daga og enn er eftir að ráðast í viðgerðir og endurbætur áður en hægt verður að leigja herbergið út á ný. Gesturinn á auk þess að skulda um tíu daga í leigu, sem nemur um 400 bandaríkjadölum. Fyrir þá sem líta í kringum sig í eigin spilaherbergi og fá samviskubit yfir tómri dós eða gleymdum umbúðum er þetta kannski ágæt áminning. Það getur alltaf verið verra. En það skaðar ekki að líta í kringum sig og taka til.
Samsett mynd: skjáskot úr myndbandi




