Það er vinsælt að taka upp bíómyndir og sjónvarpsþætti hér á landi, enda býður íslensk náttúra upp á ótal möguleika. Hins vegar er sjaldnar unnið að þróun vinsælla tölvuleikja á Íslandi.
Fyrirtækið SCS Software vinnur nú að nýrri uppfærslu fyrir hinn vinsæla tölvuleik Euro Truck Simulator 2 (ETS2). Hönnunarteymið sem mótar þessa væntanlegu útvíkkun hefur unnið af krafti hér á Íslandi að því að fanga sérstöðu landsins í leiknum.
Euro Truck Simulator 2 er vinsæll aksturs- og flutningaleikur þar sem leikmenn ferðast um Evrópu við að aka vörubílum og byggja upp eigið flutningafyrirtæki. Leikurinn er þekktur fyrir nákvæmt landslag, raunverulega akstursupplifun og sífellt meira landslag bætist við inn í leikheiminn.
Í tilkynningu frá SCS Software kemur fram að sex hönnuðir úr alls tíu manna hópi voru hér á Íslandi, undir stjórn Ivo, auk tveggja utanaðkomandi sérfræðinga. Þau deila hér hugleiðingum um vinnuna, áskoranirnar og einstaka fegurð landsins sem bíður leikmanna.

Ivo: Ísland sem langþráður draumur
Teymisstjórinn Ivo lýsir verkefninu sem draumi sem loksins rætist. Ísland býður upp á sérstöðu sem finnst ekki annars staðar í leiknum þar sem krókóttir vegir, víðáttumikið landslag og fámennt umhverfi mynda einstaka heild.
Áhugi hans á fornnorrænni sögu hefur lengi beint sjónum hans til landsins og kunnugleg örnefni úr Íslendingasögunum eru honum kærkomin innblástur.
Þótt landið sé lítið segir hann það krefjandi viðfangsefni í landslagsgerð en teymið leggi sig fram við að miðla fegurð þess af nákvæmni.

Andrea: Reynslan úr Norðurlandaverkefninu nýtist vel
Andrea vann áður að Nordic Horizons og segir þá reynslu ómetanlega í vinnunni með Íslandskortinu.
Hún nefnir að náttúra Íslands sé stórfengleg og teymið taki sér stöðugt far um að fanga hið dularfulla og mögnuðu andrúmsloft sem landið býður upp á.

Kirill: Að skapa annan heim með eigin höndum
Kirill gekk til liðs við SCS árið 2021 og segir starfið hafa opnað dyr að heimi sem hann hefði aldrei ímyndað sér að hann gæti verið hluti af. Ísland heilli hann sérstaklega, land sem stundum lítur út eins og það tilheyri öðrum hnöttum.
Að fá að skapa landslag sem hreyfir við leikmönnum um allan heim sé einstök tilfinning, og hann lýsir teymisandanum innan SCS sem ómetanlegum.

Johana: Klettar, hraun og kindur í aðalhlutverki
Johana, sem hóf störf 2023, hefur starfað bæði við Grikklands- og Norðurlandakortin. Hún segir að Ísland hafi afgerandi sérstöðu með gnægð steina, hraunsvæði og trjálítið land.
Hún bætir við léttum tón að hún vonist til að geta komið eins mörgum kindum fyrir í kortinu og unnt er, enda séu þær órjúfanlegur hluti íslenskrar náttúru.

Ashley: Ástríða fyrir flóknum vegum og áskorunum
Ashley elti draum sinn um að starfa við leikjagerð og segir það hafa verið besta ákvörðun lífs síns. Hún nýtur þess mest að hanna flóknar vegakerfislausnir með hæðarbreytingum og sveigjum og því sé Ísland fullkomið verkefni.
Hún viðurkennir að landslagið hafi fyrst virst ruglingslegt en segist nú finna mikinn takt í vinnunni og hlakkar til að leikmenn fái að upplifa lokaniðurstöðuna.
Anis: Fjöll, fossar og fjölbreytt byggð
Anis dregur fram ótrúlega fjölbreytni Íslands, frá fjöllum og fjörðum til landslags sem einkennist af fjölmörgum fossum og mjórra vega sem krefjist nákvæmni. Hann segir íslensk byggð, sem svo oft er ofin inn í náttúruna sjálfa, gefa teyminu tækifæri til að skapa heilsteypta mynd af landinu. Hann bíður spenntur eftir því að útvíkkunin verði kynnt leikmönnum.
Leikmenn beðnir um að fylgjast með framhaldinu
SCS hvetur leikmenn til að bæta Ísland við óskalista sinn á Steam og fylgjast með uppfærslum á samfélagsmiðlum fyrirtækisins. Teymið lofar frekari upplýsingum á næstunni og allt bendir til þess að íslenskir ETS2-aðdáendur eigi eftirminnilega útgáfu í vændum.
Myndir: scssoft.com






