Heim / Lan-, online mót / Íslensk BF3 landslið stofnað
Hverju viltu fylgjast með?  Þitt er valið

Íslensk BF3 landslið stofnað

Evrópsk landsliðs keppni hefur verið sett af stað í Battlefield 3 sem heitir “PSGN: 2012 Euro Cup“.  Keppnisfyrirkomulag er svipað og er í Clan Base en einungis evrópsk lið sem fá að keppa.  Mótið er byggt á 6 vs 6 og er Infantry Only.

Ísland lét ekki segja sér tvisvar um að taka þátt og var farið á fullt að stofna BF3 landslið og er það d0ct0r_who sem á veg og vanda að undirbúningnum.

Fyrsti leikur íslenska landsliðsins er 24. ágúst næstkomandi og að sjálfsögðu mun eSports.is fylgjast vel með landsliðinu og flytja ykkur fréttir frá velgengni þeirra í keppninni.

Ekki er vitað til þess að áður hefur verið stofnað landslið í BF, nema þá þegar DeadMan stjórnaði landsliði í BF 1942.

“Lineup verður sennilega flestir frá Catalyst Gaming (CG), 1-2 clanlausir sem ég er að spá í að velja í hópinn til að æfa fyrir mótið. Sjá hvað þeir geta i matches og teamwork”, sagði landsliðs captain d0ct0r_who í samtali við eSports.is aðspurður um lineup hjá landsliðinu.

Samsett mynd: painstreetnation.com

Um Chef-Jack

Chef-Jack er matreiðslumaður að mennt og hefur verið með pennann á lofti til fjölda ára og skrifað mikið um tölvuleiki og allt sem snýr að Íslensku tölvuleikjasamfélaginu. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara

x

Check Also

Solid Clouds forsýnir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers

Solid Clouds forsýnir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers

Solid Clouds býður hluthafa sína ...