Kæru lesendur esports.is.
Þegar árið er að renna sitt síðasta skeið og jólin banka upp á með meiri krafti en endaboss á hæsta erfiðleikastigi, viljum við senda ykkur okkar innilegustu jóla- og áramótakveðjur. Árið sem er að líða hefur verið algjörlega epic fyrir esports.is og móttökurnar hafa farið langt fram úr væntingum. Þið hafið snúið aftur dag eftir dag, lesið, deilt og tekið þátt í umræðunni og þannig sýnt að þörf er fyrir vandað og lifandi efni um rafíþróttir og tölvuleiki.
Esports.is hefur birt nýjar fréttir dag hvern allt árið og hraður vöxtur vefsins ber skýrt vitni um að hann hafi mælst vel fyrir hjá lesendum.
Við þökkum ykkur kærlega fyrir stuðninginn, traustið og alla athyglina. Án ykkar væri þetta bara tómt lobby. Með ykkur er þetta lifandi heimasíða sem við hlökkum til að halda áfram að byggja upp á nýju ári, með enn fleiri fréttum, umræðum og nördalegum uppfærslum.
Njótið jólanna, munið að hvíla úlnliðina, hlaða orkuna og passa að vista áður en haldið er áfram.
GG og gleðileg jól.




