Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Jólamót Apex Íslands kláraðist á mettíma þegar No Flight Zone tók völdin
    Jólamót Apex Íslands kláraðist á mettíma þegar No Flight Zone tók völdin
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Jólamót Apex Íslands kláraðist á mettíma þegar No Flight Zone tók völdin

    Chef-Jack12.12.2025Uppfært12.12.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Jólamót Apex Íslands kláraðist á mettíma þegar No Flight Zone tók völdin
    Skjáskot úr leiknum þegar No Flight Zone er í lykilstöðu á lokametrunum, augnablikum áður en sigurinn var innsiglaður.

    Jólamót Apex Íslands fór fram á Arena Gaming og var haldið í samstarfi Apex Íslands og GameTíví, stærsta styrktaraðila mótaraðarinnar. Útsending mótsins fór fram úr Meta stúdíóinu þar sem áhersla var lögð á faglega framsetningu og lifandi lýsingu á spennandi keppni.

    Keppt var eftir svokölluðu match point kerfi upp í 50 stig. Það þýðir að lið þurfa fyrst að safna 50 stigum og síðan vinna einn leik, lenda í fyrsta sæti, til að tryggja sér sigur í mótinu. Stig fást bæði fyrir lokasæti í hverjum leik, frá fyrsta til tólfta sætis, auk þess sem hvert kill gefur eitt stig. Þetta kerfi getur lengt mót töluvert ef mörg lið ná 50 stigum án þess að vinna leik, en getur einnig stytt það verulega þegar eitt lið nær fullkomnu flæði.

    Jólamót Apex Íslands kláraðist á mettíma þegar No Flight Zone tók völdin

    Það var einmitt það sem gerðist á þessu móti. Liðið No Flight Zone tryggði sér sigur með sannfærandi hætti, náði 50 stigum eftir aðeins tvo leiki og vann svo strax næsta leik. Þar með lauk mótinu eftir einungis þrjá leiki, sem telst algjör mettími í þessu keppnisformi. Sjaldan hefur sigur verið jafn snöggur og afgerandi.

    Alls tóku 13 lið þátt í mótinu, eða 39 keppendur. No Flight Zone skipað Binniyaga, MR_JON96 og Aron endaði tæknilega séð með 74 stig þegar mótið var stöðvað. Í öðru sæti endaði liðið Litlir Menn skipað Novak, Skorsteini og Finnboganum með 35 stig. Þriðja sætið hlaut liðið QDS skipað B1GMAYNE, YEEMAYNE og 9INCHMAYNE með 27 stig.

    Jólamót Apex Íslands kláraðist á mettíma þegar No Flight Zone tók völdin
    Liðið QDS, áður þekkt sem B2B eða Boys2Back, Skjálftameistarar 2025, í viðtali að Jólamóti Apex Íslands loknu.

    Liðið QDS, sem áður gekk undir nafninu B2B eða Boys2Back, eru Skjálftameistarar 2025 og mættu í viðtal að móti loknu. Þeir voru jafnframt eina liðið sem mætti á Arena Gaming til að keppa á staðnum, á meðan öll önnur lið kepptu heiman frá sér. Þegar þeir voru spurðir hvað hefði farið úrskeiðis að þessu sinni var svarið gefið með glotti á vör og kátínan lét ekki á sér standa meðal viðstaddra.

    „Mr. Jón. Þið sáuð hvað gerðist þegar hann var út á Spáni.“

    Þar var vísað til Skjálftamótsins 2025 þar sem QDS stóð uppi sem sigurvegari á meðan MR_JON96 og liðsfélagar hans í No Flight Zone gátu ekki tekið þátt, þar sem Jón var þá staddur á Spáni.

    Lýsing mótsins var í höndum Daniels Lunkevich, betur þekktur sem Dannisosa, og Kristofer McCollough, Krio, sem leiddu áhorfendur í gegnum mótið af fagmennsku og héldu uppi góðri stemningu frá upphafi til enda.

    Vod upptakan frá Jólamóti Apex Íslands

    Myndir: skjáskot úr streyminu / Melína Kolka

    9INCHMAYNE Apex Ísland Apex Legends Arena Gaming Aron - Apex Ísland B1GMAYNE B2B Binniyaga Finnboginn GameTíví Íslenskt efni Josh "YEEMAYNE" Friðriksson Litlir Menn Melína Kolka MR_JON96 No Flight Zone Novak picks QDS Skorsteinn
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.