Það er komið að nýjum hraða, stökkpöllum og alvöru árekstrum. Wreckreation, nýr open-world arcade kappakstursleikur frá Three Fields Entertainment og THQ Nordic, kemur út 28. október fyrir PlayStation 5, Xbox Series og PC. Leikurinn býður ekki aðeins upp á spennuþrungnar keppnir heldur einnig möguleikann á að hanna eigin brautir, áskoranir og jafnvel veðurfar í MixWorld, heimi sem þú stjórnar sjálfur.
Hér er ekki um að ræða hefðbundinn kappakstursleik heldur sambland af hraða, áhættuatriðum og mótunarverkfærum sem gerir þér kleift að breyta akstursævintýrinu að eigin smekk. Hvort sem þú vilt stýra einum bíl í sólóleik eða taka á móti vinum í átta manna netspili, þá bíður Wreckreation upp á möguleikann til að stökkva, velta, sprengja og brjóta öll met sem fyrir þig verða lögð.
Það var psfrettir.com sem fyrst íslenskra miðla fjallaði um Wreckreation og vakti athygli á því hvernig leikurinn brýtur upp hefðir kappakstursleikja með blöndu af Crash Mode-stemmningu frá gömlu Criterion-dögunum og frjálsu sandkassaleikgleði.
Leikurinn lofar bæði hraða og sköpunargleði, með FM útvarpi, fjölbreyttum umhverfisstillingum og endalausum möguleikum til að smíða og eyðileggja.
Hraðinn er raunverulegur, árekstrarnir epískir, sjáðu Wreckreation í aksjón!
Myndir: wreckreation.thqnordic.com





