Keppnisárið 2026 í Counter-Strike 2, þegar horft er til erlendra móta, stefnir í eitt það þéttasta og metnaðarfyllsta frá upphafi. Samkvæmt samantekt frá pley.gg liggur nú fyrir heildaryfirlit yfir staðfest CS2-mót ársins, allt frá stórmótum og Major-keppnum yfir í alþjóðlegar mótaraðir og lykilmótum í opna keppniskerfinu sem tók við eftir að Valve lagði niður samstarfsdeildir sínar.
ESL og BLAST leiða keppnisárið, ásamt mótshöldurum á borð við PGL, StarLadder og fleiri. Listinn er ekki endanlegur, heldur uppfærður jafnóðum eftir því sem nýjar upplýsingar liggja fyrir. Hér að neðan er yfirlit yfir þau mót sem þegar hafa verið staðfest og verðlaunafé fært yfir í íslenskar krónur, miðað við áætlað gengi í dag.
Janúar 2026
Janúar 2026 hefst af krafti með BLAST Bounty Season 1 sem fer fram dagana 12. til 18. janúar á netinu og heldur síðan áfram á Möltu dagana 22. til 25. janúar. Verðlaunafé mótsins nemur um 161 milljón króna, þar af um 91 milljón sem svokallaður club reward. Skömmu síðar tekur IEM Kraków við, dagana 28. janúar til 8. febrúar í Kraká í Póllandi, með verðlaunafé upp á um 175 milljónir króna.
Febrúar 2026
Febrúar er helgaður PGL Cluj-Napoca í Rúmeníu dagana 9. til 23. febrúar. Þar er keppt um um 175 milljónir króna, þar af helmingur ætlaður félögunum sjálfum.
Mars 2026
Mars býður upp á úrslit ESL Pro League Season 23 í Stokkhólmi dagana 12. til 15. mars með verðlaunafé upp á tæpar 109 milljónir króna. Í kjölfarið fer BLAST Open Season 1 fram dagana 16. til 29. mars, með riðlakeppni í Kaupmannahöfn og úrslit í Rotterdam. Heildarverðlaunafé þar nemur um 154 milljónum króna.
Apríl 2026
Apríl er einstaklega þéttur. PGL Bucharest fer fram dagana 3. til 13. apríl með um 175 milljónir í verðlaunafé. IEM Rio tekur við strax á eftir, dagana 13. til 19. apríl, þar sem um 140 milljónir króna eru í pottinum. FISSURE Playground 3 í Shenzhen í Kína fylgir dagana 20. til 26. apríl og BLAST Rivals Season 1 lýkur mánuðinum í Fort Worth í Texas dagana 27. apríl til 3. maí. Bæði mót eru með verðlaunafé upp á um 140 milljónir króna hvort.
Maí 2026
Maí býður upp á tvo risa mót. PGL Astana og IEM Atlanta fara bæði fram dagana 7. til 18. maí, hvort með verðlaunafé sem nemur annars vegar um 224 milljónum króna í Astana og hins vegar um 140 milljónum í Atlanta. Mánuðurinn endar síðan í Shanghai með CS Asia Championships dagana 19. til 24. maí.
Júní 2026
Í júní fer fram stærsta mót fyrri hluta ársins þegar IEM Cologne Major stendur dagana 2. til 21. júní í Þýskalandi. Þar er keppt um um 175 milljónir króna, án sérstakrar club reward skiptingar.
Júlí 2026
Júlí heldur áfram með FISSURE Playground 4 dagana 13. til 19. júlí, með óákveðnum staðsetningum og verðlaunafé upp á um 196 milljónir króna. BLAST Bounty Season 2 fer síðan fram á Möltu dagana 20. júlí til 2. ágúst.
Ágúst 2026
Ágúst einkennist af Esports World Cup í Riyadh í Sádi-Arabíu dagana 12. til 23. ágúst, þar sem verðlaunafé nær um 280 milljónum króna, að viðbættum sérstökum stuðningskerfum fyrir félög. Í kjölfarið fer BLAST Open Season 2 fram dagana 24. ágúst til 6. september, með verðlaunafé upp á um 154 milljónir króna.
September 2026
September er óljósari, þar sem FISSURE Playground 5 fer fram dagana 7. til 13. september án staðfest verðlaunafé. StarLadder StarSeries 20 fylgir á eftir dagana 16. til 20. september í Evrópu með um 70 milljónir króna í pottinum. ESL Pro League Season 24 fer síðan fram í Katowice dagana 3. til 11. október, þrátt fyrir að teljast hluti af hausttímabilinu.
Október 2026
Október inniheldur einnig PGL Masters Bucharest sem fer fram dagana 24. til 31. október í Rúmeníu, með um 175 milljónir króna í verðlaunafé. Athygli vekur að annað PGL-mót í október hefur verið fellt niður. Þetta mót átti áður að fara fram í Belgrad en var flutt til Búkarest í desember 2025 ásamt styttingu á keppnistímabili.
Nóvember 2026
Nóvember markar lokaáfanga ársins með IEM China dagana 2. til 8. nóvember, BLAST Rivals Season 2 dagana 9. til 15. nóvember og loks PGL Singapore Major sem stendur frá 25. nóvember til 13. desember. Þar er keppt um um 175 milljónir króna og um leið dregið tjald fyrir eitt stærsta keppnisár í sögu Counter-Strike.
Samkvæmt skýringum pley.gg er svokallað club reward kerfi nú fastur hluti af opna mótakerfinu, þar sem hluti verðlaunafjár rennur beint til félaganna sjálfra en ekki eingöngu leikmanna. ESL og BLAST voru fyrst til að innleiða þetta kerfi fyrir árið 2025 og hefur það síðan orðið viðtekin venja í stærstu mótaröðunum.
https://t.co/u5Jt7qVvZe pic.twitter.com/26zC3ABK8E
— BLAST.tv (@BLASTtv) December 10, 2025
Mynd: x.com / BLAST.tv




