Kínverska liðið Lynn Vision, sem hefur verið annað sterkasta lið landsins á alþjóðavettvangi í Counter-Strike 2, hefur verið bannað frá næsta Tier 1-móti ESL eftir að það dró sig úr ESL Pro League Season 22 vegna vegabréfs erfiðleika.
Samkvæmt reglum ESL teljast slíkar aðstæður yfirleitt til „óviðráðanlegra atvika“ ef lið geta sýnt fram á að umsóknir hafi verið hafnað vegna aðstæðna sem liðið gat ekki stjórnað. En í tilviki Lynn Vision var það ekki raunin, að vþí er fram kemur á hltv.com.
Liðið hafði ítrekað staðfest við ESL að öll ferðaskjöl væru í lagi, en þegar á reyndi kom í ljós að vegabréfsáritanir leikmanna höfðu runnið út.
#ESLProLeague Season 22 – Tournament Ruling
With ESL Pro League Season 22 drawing to a close, we have finalised our investigation into the recent last-minute withdrawals of @Lynnvision_ and @virtuspro. pic.twitter.com/kUzHQJqHbT
— ESL Counter-Strike (@ESLCS) October 10, 2025
ESL sagði í yfirlýsingu að þó mistökin hafi hugsanlega ekki verið af ásetningi, þá væru þau engu að síður „algerlega óásættanleg“ og féllu ekki undir neinar undantekningarástæður, hvorki læknis,- né ferðatengdar.
Af þeim sökum taldi ESL Lynn Vision sjálft bera ábyrgð á forföllunum og á þeirri röskun sem þau höfðu á mótinu. Liðið fær því bann frá næsta Tier 1-viðburði sem það hefði fengið boð í.
Næsta tækifæri þeirra til þátttöku verður líklega á IEM Krakow 2026, þar sem pólsku IEM-mótin flytjast frá Katowice í nýju Tauron Arena í Kraká.
Virtus.pro slapp við refsingu
Rússneska liðið Virtus.pro slapp við sambærilegar refsingar, þrátt fyrir að hafa einnig misst af mótinu eftir að tveimur leikmönnum var neitað um inngöngu í Svíþjóð vegna vanrækslu á ferðatryggingum innan Schengen-svæðisins.
Í þessu tilviki féllst ESL á að Virtus.pro hefði haft öll nauðsynleg skjöl í lagi og taldi atvikið falla undir „óviðráðanlegar aðstæður“. Liðið slapp því við bann, en báðir aðilar, bæði Virtus.pro og Lynn Vision, þurfa að greiða kostnað sem tengist því að finna staðgengla fyrir þau á mótinu.
Brottfall beggja liða hafði þó keðjuverkandi áhrif. Virtus.pro missti af síðasta tækifæri sínu til að safna stigum fyrir boð á StarLadder Budapest Major 2025, sem aftur opnaði dyr fyrir breska liðið Fnatic til að tryggja sér þátttöku.
Mynd: x.com / Lynn Vision




