Microsoft hefur hætt við þróun tölvuleiksins Contraband eftir margra ára bið og þögn um verkefnið. Leikurinn, sem var í smíðum hjá sænska þróunarhópnum Avalanche Studios, var kynntur til sögunnar á Xbox og Bethesda Games Showcase árið 2021 og átti að bjóða leikmönnum upp á ævintýri í opnum heimi þar sem smygl, glæpamenning og samvinnuspil voru í fyrirrúmi.
Þetta staðfestir fréttamaðurinn Jason Schreier hjá Bloomberg:
BREAKING: Xbox is canceling Contraband, announced in 2021 from Avalanche Studios (Just Cause), after four years of radio silence, sources tell Bloomberg News. This news arrives weeks after a mass layoff in which Xbox canceled several other big titles.
— Jason Schreier (@jasonschreier.bsky.social) August 7, 2025 at 4:56 PM
Þrátt fyrir miklar væntingar hefur lítið sést eða heyrst frá leiknum undanfarin ár. Nú staðfestir Microsoft að þróunin hafi verið stöðvuð á meðan framtíð verkefnisins er endurskoðuð. Ákvörðunin kemur á tímum þar sem Xbox hefur gengið í gegnum umfangsmiklar breytingar, þar á meðal uppsagnir og endurskipulagningu, og fleiri verkefni hafa fengið sömu örlög.
Jason segir einnig í tilkynningu á BlueSky að Microsoft staðfestir að OD, nýjasti leikur Hideo Kojima, sé enn í fullri þróun. Leikurinn, sem er sagður blanda af leik og kvikmyndatækni með áherslu á ógnvænlega stemningu, hefur vakið mikla athygli þrátt fyrir að fáar upplýsingar hafi verið gefnar upp.
Kojima vinnur að verkefninu í samstarfi við kvikmyndagerðarmanninn Jordan Peele og meðal leikara eru Sophia Lillis, Hunter Schafer og Udo Kier.
OD, the collaboration between Xbox and Hideo Kojima, is still in development, a Microsoft spokesperson tells me.
— Jason Schreier (@jasonschreier.bsky.social) August 7, 2025 at 5:07 PM
Ákvörðun Microsoft að halda áfram með OD á sama tíma og Contraband er sett til hliðar gefur vísbendingu um að fyrirtækið leggi meiri áherslu á einstök, frumleg verkefni frá þekktum höfundum, jafnvel þótt þau séu áhættusöm.
Avalanche’s statement on Contraband – „Active development has now stopped while we evaluate the project’s future“ https://t.co/hMAn64kcYh pic.twitter.com/lo2bMUSMq6
— Wario64 (@Wario64) August 7, 2025
Mynd: xbox.com




