Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Mikil spenna á Kia Íslandsmeistaramóti Ungmenna – Myndir
    Mikil spenna á Kia Íslandsmeistaramóti Ungmenna - Myndir
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Mikil spenna á Kia Íslandsmeistaramóti Ungmenna – Myndir

    Chef-Jack29.04.20263 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Mikil spenna á Kia Íslandsmeistaramóti Ungmenna - Myndir

    Kia Íslandsmeistaramót Ungmenna í rafíþróttum fór fram um helgina í Next Level Gaming í Egilshöll. Fjöldi ungmenna frá níu félögum tókust á í Fortnite og Minecraft í spennandi keppni þar sem keppendur sýndu frábæra takta þrátt fyrir ungan aldur, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Rafíþróttasambandi Íslands.

    Mótinu lauk með verðlaunaafhendingu þar sem sigurvegarar tóku við bikar og allir keppendur hlutu medalíur.

    Mikil spenna á Kia Íslandsmeistaramóti Ungmenna - Myndir

    Fortnite Einstaklingskeppni (Solo)

    Í flokki eldri keppenda sýndi Brimir Leó Bjarnason (FH) mikla yfirburði, en hann lauk keppni með samtals 230 stig. Félagi hans úr Hafnarfirðinum, Þorlákur Gottskálk Guðfinnsson (FH) tók annað sætið með 164 stig. Rétt á eftir honum var hann Sigurjón Bjarni Óskarsson (C3LL4R) sem hafnaði í þriðja sæti með 144 stig.

    Það var mikil barátta í flokki yngri keppenda. Þar var hann Hjálmar Sigurður Hauksson (FH) sem stóð uppi sem sigurvegari með 92 stig eftir góða spilamennsku yfir helgina.

    Mikil spenna á Kia Íslandsmeistaramóti Ungmenna - Myndir

    Ekki munaði miklu á öðru og þriðja sætinu, en þar voru aðeins tvö stig á milli keppenda.  Bjarki Geir Sigurjónsson (Breiðablik) hoppaði upp í annað sætið með 72 stig eftir góða spilamennsku í loka leik helgarinnar, en Baltasar Ingi Sigurðsson (FH) þurfti því að sætta sig við þriðja sætið með 70 stig.

    Mikil spenna á Kia Íslandsmeistaramóti Ungmenna - Myndir

    Fortnite Liðakeppni (Duos)

    Í eldri flokki var hreinlega um FH-sýningu að ræða, þar sem keppendur þeirra tóku efstu þrjú sætin. Benedikt Nóel Benediktsson og Alexander Orri Eiríksson fóru á kostum þar sem þeir unnu 4/7 leikjum helgarinnar og tryggðu sér fyrsta sætið með 286 stig.

    Í öðru sæti voru Þorlákur Gottskálk Guðfinnsson og Hjálmar Sigurður Hauksson með 254 stig og í þriðja sæti lentu Baltasar Ingi Sigurðsson og Brimir Leó Bjarnason með 190 stig.

    Mikil spenna á Kia Íslandsmeistaramóti Ungmenna - Myndir

    Í yngri keppnisflokk munaði aðeins örfáum stigum á efstu tveim liðunum. Það voru þeir Kári Hrafn Andrason og Oddur Hersveinn (Ármann) sem stóðu uppi sem sigurvegarar eftir harða baráttu við Arnar Leó Níelsson og Dag Snæ Franzson (FH).

    Ármenningarnir söfnuðu 130 stigum, aðeins sex stigum meira en tvíeykið frá FH, sem máttu þola það að lenda í öðru sæti eftir æsispennandi loka leik. þeir Pétur Ingi Oddsson og Bjarki Geir Sigurjónsson (Breiðablik) tryggðu sér síðan þriðja sætið með 86 stig.

    Mikil spenna á Kia Íslandsmeistaramóti Ungmenna - Myndir

    Minecraft

    Minecraft-hluti mótsins bauð upp á jafna og skemmtilega keppni þar sem reynt var á ólíka færni. Á Laugardeginum var keppt í Þrautakeppni þar sem Ólafur Helgi Rúnarsson (Rafmos) stóð uppi sem sigurvegari.  En á Sunnudeginum var síðan Byggingarkeppni, og var það hann Fróði Hákonarson (Breiðablik) sem tók gullið.

    Myndir: rafithrottir.is

    Fortnite Battle Royale Íslenskt efni Minecraft Next Level Gaming Rafíþróttasamband Íslands
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.