Close Menu
    Nýjar fréttir

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Minningamót í Rocket League vakti athygli um alla Evrópu – Styrktarsöfnun heldur áfram fyrir fjölskyldu Árna Fannars
    Minningamót í Rocket League vakti athygli um alla Evrópu - Árni Fannar Aðalsteinsson
    Árni Fannar Aðalsteinsson
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Minningamót í Rocket League vakti athygli um alla Evrópu – Styrktarsöfnun heldur áfram fyrir fjölskyldu Árna Fannars

    Chef-Jack25.08.2025Uppfært28.08.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Minningamót í Rocket League vakti athygli um alla Evrópu - Árni Fannar Aðalsteinsson
    Minningamótið var haldið til heiðurs Árna Fannari „Arconix96“ sem lést langt um aldur fram.

    Í gær kom íslenska Rocket League samfélagið saman til að minnast Árna Fannars Aðalsteinssonar, betur þekktur sem Arconix96, sem lést langt um aldur fram. Haldið var sérstakt minningamót þar sem vinir, félagar og keppnisfélagar hans sameinuðust í leiknum sem hann hafði svo mikla ástríðu fyrir.

    Bein útsending fór fram á Twitch-rás RLÍS, þar sem áhorfendur gátu fylgst með leikjunum, andrúmsloftinu og þeirri stemningu sem ríkti á mótinu. Samanlagt tóku tíu lið þátt og keppt var í Rumble, sem var uppáhalds gamemode Árna Fannars.

    Úrslit réðust á dramatískan hátt þegar Danni Djús og Robo, einnig þekktur sem NjósnaUglan, tryggðu sér sigur gegn Bizzy og Frussa á lokametrunum.

    Alls hafa um 200 þúsund krónur safnast fyrir fjölskyldu Árna. Til þess að styðja áfram er hægt að leggja inn á styrktarreikning eða í gegnum GoFundMe-síðu sem hefur verið sett upp.

    Styrktarreikningur fjölskyldu Árna:
    Kt: 240896-3039
    Rkn: 0301-26-063039

    Á beinu útsendingunni bárust fallegar kveðjur frá vinum og leikfélögum um alla Evrópu. Árni Fannar keppti í fjölmörgum Rocket League deildum erlendis og átti stóran vinahóp innan leiksins. Sérstaklega vakti athygli þegar sænska Rocket League deildin sendi „raid“ inn á útsendinguna til að sýna samhug með íslenska samfélaginu.

    Jóhannes Geir Sigurjónsson, betur þekktur sem Brjánzi og einn af skipuleggjendum mótsins, vill þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg.

    „Ég vil færa RLÍS, 354 samfélaginu, Brave Esports og öllum öðrum sem hjálpuðu til innilegar þakkir.“

    sagði Brjánzi í samtali við esports.is.

    Hann bætti við að það hefði verið afar áhrifamikið að fá hinn goðsagnakennda Rocket League caster Dingó til liðs við minningamótið, en hann er einn af upphafsmönnum íslenska Rocket League samfélagsins og kom sérstaklega til að heiðra Árna.

    Af hálfu esports.is eru fjölskyldu og vinum Árna Fannars færðar dýpstu samúðarkveðjur.

    picks Rocket League
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Rafíþróttasamband Íslands - RÍSÍ - Logo
      Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli
      16.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.