Close Menu
    Nýjar fréttir

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Mongolz hrepptu heimsmeistaratitilinn í CS2 á Esports World Cup 2025
    Mongolz hrepptu heimsmeistaratitilinn í CS2 á Esports World Cup 2025
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Mongolz hrepptu heimsmeistaratitilinn í CS2 á Esports World Cup 2025

    Chef-Jack26.08.2025Uppfært26.08.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Mongolz hrepptu heimsmeistaratitilinn í CS2 á Esports World Cup 2025

    Það var söguleg stund í Counter-Strike 2 á Esports World Cup 2025 þegar mongólska liðið The Mongolz tryggði sér sigur í úrslitum gegn Aurora Gaming. Með því bætist liðið í hóp þeirra félaga sem unnið hafa meistaratitil á mótinu, en mótið fór fram í Riyadh í Sádi-Arabíu.

    Ótrúleg leið að toppnum

    Keppnin var hörð og miskunnarlaus, þar sem ein töpuð viðureign þýddi endalok. The Mongolz, sem hófu mótið sem fjórða styrkleikalið, byrjuðu á öruggum sigri gegn Gamer Legion. Í átta liða úrslitum áttu þeir í harðri viðureign við 3DMAX, misstu einn leik en svöruðu fyrir sig á Nuke þar sem þeir lokuðu leiknum 13–8 og héldu áfram.

    Í undanúrslitum beið heimsfrægt lið, Team Vitality, sem margir höfðu talið ósigrandi á mótinu. Mongolz stigu þar upp með ótrúlegri einbeitingu og tryggðu sér sæti í úrslitum með eftirminnilegum 2–1 sigri.

    Úrslitaleikurinn

    Tugþúsundir stuðningsmanna í Mongólíu fylgdust með úrslitaleiknum þar sem The Mongolz mættu Aurora Gaming. Fyrsti leikurinn fór alla leið í framlengingu og endaði 16–14. Annar leikurinn var jafn en Mongolz sigruðu 13–9.

    Þá var loksins dregið til stóra höggsins í þriðja leiknum þar sem þeir sýndu fullkomna stjórn og unnu með yfirburðum 13–4. Þar með var sigurinn tryggður.

    Mongolz hrepptu heimsmeistaratitilinn í CS2 á Esports World Cup 2025
    Techno4K bestur á vellinum

    Techno4K bestur á vellinum

    Enginn efast um að Sodbayar „Techno4K“ Munkhbold var maður mótsins. Hann var valinn SONY MVP og hlaut auk þess 10.000 bandaríkjadala, sem samsvarar um 1,3 milljónum íslenskra króna, í verðlaun fyrir frábæra frammistöðu.

    Myndir: esportsworldcup.com

    Aurora Gaming counter strike Counter Strike 2 Esports World Cup Gamer Legion Sodbayar „Techno4K“ Munkhbold Team Vitality The MongolZ
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Rafíþróttasamband Íslands - RÍSÍ - Logo
      Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli
      16.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.