Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll

    Chef-Jack09.03.2026Uppfært10.03.20263 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll

    StarCraft hátíð var haldin um helgina í rafíþróttamiðstöðinni Next Level Gaming í Egilshöll þar sem tugir aðdáenda klassíska herkænskuleiksins komu saman til að spila, keppa og hitta gamla spilafélaga.

    Viðburðurinn var haldinn í tilefni þess að 28 ár eru liðin frá útgáfu upprunalega leiksins og markaði jafnframt skemmtilegan endurfund margra sem hafa fylgt seríunni í gegnum árin.

    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll

    Krýndir Íslandsmeistarar í tveimur leikjum

    Í mótinu var keppt í bæði StarCraft og StarCraft II þar sem sigurvegarar hlutu verðlaunabikar og þar með formlegan titil Íslandsmeistara í hvorum leik.

    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Bjarni Ólafsson, sem spilar undir nafninu Steamy, kyssir bikarinn eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í StarCraft á StarCraft hátíðinni í Next Level Gaming í Egilshöll.
    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Þórgeir Atli, betur þekktur sem dodi, varð Íslandsmeistari í StarCraft II á hátíðinni og vann alla sína leiki á mótinu.

    Bjarni Ólafsson, sem spilar undir nafninu Steamy, sigraði í StarCraft en Þórgeir Atli, betur þekktur sem Dodi, stóð uppi sem Íslandsmeistari í StarCraft II. Úrslitaeinvígin voru sýnd á stórum skjá í salnum þar sem áhorfendur fylgdust spenntir með gangi mála.

    Við verðlaunaafhendingu var síðan heiðraður gamall siður úr kóreskum StarCraft keppnum þegar sigurvegararnir kysstu bikarinn.

    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    F.v. Halli (Icedralisk) og Óli (Kjarni). Halli hafnaði í öðru sæti í B-deildinni í StarCraft en Óli stóð uppi sem sigurvegari deildarinnar.

    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll

    Að sögn skipuleggjenda gekk viðburðurinn afar vel þrátt fyrir smávægilega byrjunarörðugleika.

    „Á heildina litið gekk þetta mjög vel, þó að við höfum lent í smá tæknilegum erfiðleikum í upphafi. Sem betur fer leystist það fljótt og stemningin var frábær allan daginn,“

    segja skipuleggjendur í samtali við esports.is.

    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Jökull Jóhannsson, framkvæmdarstjóri hjá RÍSÍ og fyrrum atvinnumaður í StarCraft, náði frábærum árangri á mótinu og komst í undanúrslit þrátt fyrir að hafa ekki snert leikinn í mörg ár.

    Aldursbilið vakti athygli gesta

    Keppendur komu af öllum getustigum, allt frá fyrrverandi atvinnumönnum í rafíþróttum til byrjenda sem voru að taka sín fyrstu skref í keppnisspilun.

    Yngsti þátttakandinn var um tólf ára gamall en sá elsti á fimmtugsaldri. Sérstaklega vakti athygli skemmtideild í StarCraft sem var ætluð þeim sem vildu spila án þess að mæta sterkustu keppendunum. Þar voru margir spennandi leikir og greinilegt að þátttakendur bættu sig með hverjum leiknum.

    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll
    Myndir: StarCraft hátíð vakti mikla lukku í Egilshöll

    Lýsandi fenginn frá Bandaríkjunum

    Úrslitaleikirnir fengu einnig sérstaka umgjörð. Fyrir StarCraft var fenginn lýsandi frá Bandaríkjunum sem lýsti leikjunum í gegnum streymi sem síðan var spilað í salnum. Í StarCraft II komu lýsendurnir hins vegar úr röðum hátíðargesta sjálfra.

    Aðsókn var góð yfir daginn og mættu um fjörutíu manns á viðburðinn. Flestir komu til að spila en einnig litu margir við til að fylgjast með leikjunum og hitta aðra áhugamenn um StarCraft. Sumir lögðu jafnvel langa leið að baki til að taka þátt.

    „Það var greinilegt að uppsafnaður áhugi var fyrir svona viðburði og svo góð stemning myndaðist meðal gesta að við erum þegar farin að leggja á ráðin um að endurtaka og efla hátíðina að ári,“

    segja skipuleggjendur.

    Meðfylgjandi myndir tók Þorsteinn Jónas Sigurbjörnsson.

    Egilshöll Next Level Gaming StarCraft Starcraft 2
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.