Netflix stígur stórt skref inn á knattspyrnuleikjamarkaðinn þegar FIFA snýr aftur í nýjum búningi og verður aðgengilegt á Netflix Games sumarið 2026, samhliða heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Um er að ræða endurhannaðan FIFA-leik sem verður eingöngu í boði fyrir áskrifendur Netflix og verður spilanlegur í snjallsímum, bæði einn og með vinum á netinu.
Leikurinn er þróaður og gefinn út af Delphi Interactive og leggur áherslu á að fanga tilfinningar, spennu og dramatík heimsmeistaramótsins í aðgengilegu og leikrænu formi. Markmiðið er að skapa knattspyrnuleik sem er fljótlegur að læra en krefjandi að ná tökum á og henti jafnt nýjum spilurum sem reynslumiklum aðdáendum FIFA-seríunnar.
Alain Tascan, yfirmaður leikjadeildar Netflix, segir heimsmeistaramótið 2026 verða einn stærsta menningarviðburð áratugarins og að með samstarfinu vilji Netflix færa knattspyrnuna aftur að rótum sínum. Hann segir áhersluna liggja í einfaldleika, þar sem allir geti tekið þátt með einum hnappi og upplifað gleðina sem fylgir leiknum.
Forseti FIFA, Gianni Infantino, lýsir samstarfinu sem tímamótum í stafrænum knattspyrnuleikjum. Hann segir verkefnið endurspegla metnað FIFA til nýsköpunar og að ná til milljarða knattspyrnuaðdáenda um allan heim, óháð aldri. Leikurinn verði aðgengilegur án aukakostnaðar fyrir Netflix-áskrifendur og marki upphaf nýs kafla í sögu FIFA-leikjanna.
Forráðamenn Delphi Interactive taka í sama streng. Casper Daugaard, stofnandi og forstjóri fyrirtækisins, segir knattspyrnu stærsta fyrirbæri heims og að það sé heiður fyrir Delphi að fá að móta næstu kynslóð FIFA-leikja. Andy Kleinman, forseti Delphi Interactive, bætir við að markmiðið sé að skapa leik sem allir geti gripið í hvar sem er og fundið fyrir töfrum knattspyrnunnar á örskotsstundu.
Í tilkynningunni kemur einnig fram að Netflix hyggist leggja aukna áherslu á spilun í sjónvörpum, þar sem notendur geta spilað leiki beint í sjónvarpinu og notað símann sem stýringu. Nýi FIFA-leikurinn verður hluti af þeirri leikjasafnuppbyggingu, samhliða þáttum og kvikmyndum á vettvanginum.
Nánari upplýsingar um leikinn verða kynntar síðar, en samkvæmt Netflix má líta á þessa tilkynningu sem upphafsflautu að því sem koma skal þegar heimsmeistaramótið í knattspyrnu fer fram árið 2026.
Mynd: aðsend / Netflix




