Í gærkvöldi var ýtt á reset-hnappinn og nýr heimur opnaður á Minecraft-servernum Spicy.is, þar sem ævintýrið hefst á ný fyrir bæði gamla og nýja spilara. Fyrir þá sem ekki þekkja til er Spicy.is hreinræktaður survival-server þar sem leikurinn er spilaður eins og margir telja hann vera bestan, án mikilla afskipta og án þess að verið sé að halda í höndina á fólki.
Spilað er í Java-útgáfu Minecraft 1.21.11, sem færir leikmönnum ný kvikindi, nýja hluti og fleiri tækifæri til að nördast ofan í kerfin sem gera Minecraft að þeim tímaþjófi sem hann er þekktur fyrir. Grunnurinn er að mestu leyti klassískt vanilla Minecraft, þar sem leikmenn þurfa sjálfir að finna taktinn, byggja upp, lifa af og móta heiminn í kringum sig.
Enginn fastur spawn-punktur er á servernum og enginn miðpunktur sem allir byrja á. Í staðinn fær hver spilari handahófskenndan byrjunarreit og þarf að fóta sig sjálfur í nýjum heimi. Þrátt fyrir það er samvinna í boði, þar sem leikmenn geta ferðast til vina sinna með skipuninni /tpa, svo lengi sem móttakandinn samþykkir beiðnina. Þá er einnig hægt að setja sér heimastað með /sethome og snúa aftur með /home, sem gerir langar könnunarferðir aðeins minna stressandi.
Spicy.is virðist því leggja áherslu á jafnvægi milli frelsis og þæginda, þar sem kjarninn er survival-upplifun án óþarfa skrauts, en með nægilega miklu kryddi til að halda jafnvel hörðustu Minecraft-nördum við efnið.
Serverinn er opinn á IP-tölunni Spicy.is, spilað er í Java útgáfu 1.21.11 og samfélagið er virkt á Discord þar sem leikmenn hittast, spjalla og skipuleggja ævintýrin.




