Öryggisgalli í Escape From Tarkov hefur á síðustu dögum valdið miklu uppnámi meðal spilara, eftir að heilum prófílum var einfaldlega þurrkað út á augabragði. Fyrir marga reyndist þetta óvænt og afar súr jólagjöf, þegar leikurinn bauð þá ekki velkomna inn í prófílinn sinn heldur beint í upphafsskjáinn þar sem velja þarf fylkingu, gælunafn og útlit persónu. Allur fyrri árangur horfinn, eins og hann hafi aldrei verið til.
Tilkynningar um svokallaðar “mystery wipes” hafa flætt yfir samfélagsmiðla og spjallsíður tengdar Tarkov, og ljóst er að hér er ekki um hefðbundið wipe að ræða. Samkvæmt fyrstu upplýsingum virðist um að ræða alvarlegan veikleika á vefsíðu leiksins sem gerir þriðja aðila kleift að endurstilla prófíla og breyta upplýsingum þeirra, jafnvel þótt tveggja þátta auðkenning sé virk. Það sem gerir stöðuna enn alvarlegri er að endurstilling lykilorðs virðast ekki útiloka þann sem misnotar gallann frá prófílnum.
Eina raunhæfa lausnin sem spilurum stendur til boða að svo stöddu er að hafa samband við þjónustudeild BattleState Games, biðja um að aðgangurinn verði læstur og skrá sig síðan aftur inn með nýjum aðgangsupplýsingum. Óvissa ríkir um hvort árangur spilara verði færður til baka og engin skýr loforð hafa verið gefin í þeim efnum.
Streymarar virðast hafa orðið sérstaklega illa úti í þessari bylgju. Þekkt nöfn á borð við DrLupo misstu aðgang sinn, en hvað mestan skaða hlaut streymarinn BAXBEAST. Samkvæmt færslu á samfélagsmiðlum tapaði hann level 53 aðgangi rétt áður en hann náði Prestige 5, með For Humanity lokaquestið þegar í höfn. Fyrir leik sem er þekktur fyrir að krefjast ótal klukkustundir er slíkt högg ekkert smáræði.
I got RESET TO 0 IN TARKOV?
Somehow, an hour ago someone logged into my account and reset it to 0, they also changed my profile Pic, my accounts have double log verification, etc. Never had this happen before, with any account whatsoever. I was lvl 53 ready to prestige 5 with all… pic.twitter.com/dAtts06Ulc— BAXBEAST (@BAXBEAST) December 26, 2025
LogicalSolutions segir að BattleState Games sé meðvitað um vandann og vinni að lausn.
#EscapeFromTarkov ** TWO FACTOR DOES NOT MATTER **
I was playing Arena… switched to Main Game… Whole profile was reset. @bstategames this is a massive emergency. you guys need to fix this and roll back people asap.
This is crazy. @JakeSucky @Dexerto pic.twitter.com/Hi9KGEXtxq
— LogicalSolutions (@LogicaISoIution) December 26, 2025
Hvort spilarar fái tíma sinn og svita til baka á eftir að koma í ljós. Ef ekki, þá var þetta eina extractionið þar sem allt lootið hvarf með spilaranum.
Mynd: escapefromtarkov.com




