Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Prefire Meistarinn á úrslitakvöldi Ljósleiðaradeildarinnar
    Prefire Meistarinn á úrslitakvöldi Ljósleiðaradeildarinnar
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Prefire Meistarinn á úrslitakvöldi Ljósleiðaradeildarinnar

    Chef-Jack13.03.2026Uppfært13.03.20262 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Prefire Meistarinn á úrslitakvöldi Ljósleiðaradeildarinnar

    Hver verður krýndur Prefire Meistarinn í Counter-Strike? 28. mars fer fram úrslitakvöld Ljósleiðaradeildarinnar í  Next Level Gaming, Egilshöll.

    Þar mætast tvö sterkustu Counter-Strike lið landsins og keppa til úrslita, en þau verða ekki ein í því að keppast um fyrsta sætið á úrslitakvöldinu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Rafíþróttasambandi Íslands.

    Prefire Meistarinn á úrslitakvöldi Ljósleiðaradeildarinnar

    Á staðnum verður Prefire Meistarinn í boði Red Bull, sem er skemmtileg en krefjandi áskorun í hinum vinsæla Prefire í Counter-Strike.

    Prefire Meistarinn verður krýndur í lok úrslitakvöldsins og fer heim með glæsilega vinninga frá Ofar og Red Bull.

    Hvernig virkar Prefire Meistarinn?

    Prefire Meistarinn á úrslitakvöldi Ljósleiðaradeildarinnar

    • Allir sem mæta á úrslitakvöldið geta spreytt sig í Prefire Meistaranum.
    • Það er keppt í fyrirfram ákveðnum Prefire korti (Workshop map)
    • Allir sem spreyta sig fá að snúa lukkuhjóli með smærri vinningum.
    • Besti tíminn hjá hverjum keppanda fer á stigatöfluna.
    • Keppendum er velkomið að spreyta sig eins oft og þeir vilja yfir kvöldið til að bæta tímann sinn.
    • Besti tíminn í lok kvöldsins fer heim með glæsilegan vinning frá Ofar og Red Bull.

    Rosalegur vinningur

    Prefire Meistarinn á úrslitakvöldi Ljósleiðaradeildarinnar

    Það er til mikils að vinna, en sigurvegarinn í lok kvöldsins fer heim með glæsilegan Lenovo Legion Pro leikjaskjá frá Ofar að andvirði 100 þúsund króna.

    Þessi 27″ skjár býður upp á silkimjúkar hreyfingar og mikla litadýpt með QD-OLED skjátækni, QHD upplausn og 280 Hz tiftíðni.  Alveg frábær viðbót í setup-ið hjá öllum tölvuleikjaspilurum.

    Upphitun og æfing

    Áhugasamir geta mætt tilbúnir til leiks í Prefire Meistarann, en í aðdraganda úrslitakvöldsins verður opinberað hvaða Prefire kort verður keppt í.

    Það er því um að gera að fylgjast vel með á Facebook síðu viðburðarins þar sem þær upplýsingar verða fyrst birtar.

    Annars er búist við hörkukeppni og góðri stemningu á úrslitakvöldi Ljósleiðaradeildarinnar og Rafíþróttasamband Íslands hvetur allt Counter-Strike-áhugafólk landsins til að taka frá kvöldið og mæta á svæðið.

    Myndir: Rafíþróttasamband Íslands

    counter strike Counter Strike 2 Ljósleiðaradeildin Ljósleiðaradeildin - CS Prefire Meistarinn Rafíþróttasamband Íslands
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.