Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»RÍSÍ og Next Level Gaming skrifa undir samstarfssamning um rafíþróttaviðburði
    RÍSÍ og Next Level Gaming skrifa undir samstarfssamning um rafíþróttaviðburði
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    RÍSÍ og Next Level Gaming skrifa undir samstarfssamning um rafíþróttaviðburði

    Chef-Jack27.04.2026Uppfært28.04.20262 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    RÍSÍ og Next Level Gaming skrifa undir samstarfssamning um rafíþróttaviðburði
    Verðlaunahafar á KIA Íslandsmóti ungmenna í rafíþróttum stilla sér upp með bikara og verðlaunapeninga að lokinni keppni.

    Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) og Next Level Gaming ehf. hafa skrifað undir samstarfssamning um aukið og markvisst samstarf um framkvæmd rafíþróttaviðburða á Íslandi.

    Samstarfið nær meðal annars til ungmennamóta, úrslitaviðburða og annarra stærri viðburða á vegum sambandsins sem haldnir verða í aðstöðu Next Level Gaming í Egilshöll.

    RÍSÍ og Next Level Gaming skrifa undir samstarfssamning um rafíþróttaviðburði
    Keppendur tóku þátt í KIA Íslandsmóti ungmenna í rafíþróttum sem fram fór um helgina í aðstöðu Next Level Gaming í Egilshöll.

    Um helgina fór KIA Íslandsmót ungmenna í rafíþróttum fram í húsakynnum Next Level Gaming við góðar undirtektir. Viðburðurinn heppnaðist vel og undirstrikar mikilvægi þess að hafa góða og aðgengilega aðstöðu fyrir skipulagt mótahald í rafíþróttum.

    RÍSÍ og Next Level Gaming skrifa undir samstarfssamning um rafíþróttaviðburði
    Jökull Jóhannsson og Þórir Viðarsson við undirritun samstarfssamnings RÍSÍ og Next Level Gaming í Egilshöll.

    Jökull Jóhannsson framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands segir samstarfið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu rafíþróttastarfs á Íslandi.

    „Við erum mjög ánægð með að hafa skrifað undir samstarfssamning við Next Level Gaming.

    Aðstaðan í Egilshöll skapar góð skilyrði fyrir mótahald og gerir okkur kleift að halda bæði ungmennamót og úrslitaviðburði á einum stað sem hentar vel fyrir keppendur og áhorfendur,“

    segir Jökull.

    Hann segir sérstaklega mikilvægt að tryggja stöðugleika í aðstöðu fyrir mótahald.

    „Viðburðir eins og Kia Íslandsmót ungmenna sýna hversu miklu máli skiptir að hafa trausta umgjörð utan um mótin.

    Samstarfið við Next Level Gaming styrkir þann grunn og styður við áframhaldandi þróun rafíþrótta á Íslandi.“

    Þórir Viðarsson framkvæmdastjóri Next Level Gaming segir fyrirtækið leggja áherslu á að styðja við skipulagt rafíþróttastarf í samstarfi við sambandið.

    „Það er okkur mikilvægt að vinna náið með Rafíþróttasambandi Íslands að uppbyggingu rafíþrótta á Íslandi.

    Með þessum samningi skapast góðar forsendur fyrir áframhaldandi samstarfi um mótahald og viðburði í Egilshöll og við hlökkum til verkefnanna fram undan,“

    segir Þórir.

    RÍSÍ og Next Level Gaming skrifa undir samstarfssamning um rafíþróttaviðburði
    Keppendur og gestir fylgdust með á KIA Íslandsmóti ungmenna í rafíþróttum sem fram fór í aðstöðu Next Level Gaming í Egilshöll.

    Samstarfssamningurinn er liður í því að efla umgjörð rafíþróttaviðburða á Íslandi og styrkja aðstöðu fyrir keppendur á öllum aldri.

    Myndir: Rafíþróttasamband Íslands

    Íslenskt efni Jökull „Kaldi“ Jóhannsson Next Level Gaming Rafíþróttasamband Íslands turboDrake Þórir Viðarsson
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.