
Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) standa fyrir dagsnámskeiði í „casting“ fyrir þá sem vilja bæta sig sem lýsendur í rafíþróttum. Á námskeiðinu er farið yfir undirbúning, frammistöðu lýsanda, stjórnun sýninga, hlutverk lýsanda og viðtöl.
Námskeiðið fer fram í Rafmennt við Stórhöfða 27 í Reykjavík á morgun, laugardaginn 16. ágúst. Verðið er 19.900 krónur og skráning fer fram hér.
Fyrirspurnir má senda á [email protected].



