Heim / Mobile / Solid Clouds opnar fyrir aðgang að nýjasta leik sínum, Starborne Frontiers – Vídeó
Hverju viltu fylgjast með?  Þitt er valið

Solid Clouds opnar fyrir aðgang að nýjasta leik sínum, Starborne Frontiers – Vídeó

Starborne Frontiers

Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Solid Clouds hefur lokið stórum þróunaráfanga fyrir nýjasta leik sinn, Starborne Frontiers, og er hann núna öllum aðgengilegur í snjalltækjaverslunum Apple og Google (e. app store). Hér er um að ræða fyrsta skrefið í útgáfuferli leiksins.

Gögn um hegðun spilara verða notuð til að þróa og fínstilla leikinn svo að hann nái tilskildum viðmiðunarmörkum varðandi tekjur og spilatíma hvers notanda. Þegar þessum markmiðum hefur verið náð er næsti stóri áfangi félagsins endanleg útgáfa leiksins.

Starborne Frontiers er hannaður fyrir snjalltæki en einnig verður hægt að spila hann í PC-útgáfu á næstu misserum. Um er að ræða hlutverkaleik þar sem spilarinn er í hlutverki leiðtoga sem safnar og uppfærir flota geimskipa til að kanna, skipuleggja og sigra Starborne heiminn sem er fullur af spennu og bardögum.

„Opnun leiksins fyrir almenning er risastór áfangi fyrir félagið og teymið sem hefur unnið hörðum höndum að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Við hlökkum til að fá viðbrögð spilara og hvetjum alla til að ná sér í leikinn frítt.

Við nálgumst endanlega útgáfu leiksins en hann á bara eftir að verða betri eftir því sem við ítrum hann áfram“,

segir Stefán Gunnarsson, forstjóri Solid Clouds.

Mynd: solidclouds.com

Um Chef-Jack

Chef-Jack er matreiðslumaður að mennt og hefur verið með pennann á lofti til fjölda ára og skrifað mikið um tölvuleiki og allt sem snýr að Íslensku tölvuleikjasamfélaginu. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]