TFCL og Quick Esports League hafa tilkynnt að önnur útgáfa af Post-Season Cup í Team Fortress 2 fari fram dagana 5. til 7. september 2025. Keppnin er opin öllum leikmönnum, óháð reynslu eða styrkleika, og verður skipt í þrjár deildir eftir færnistigi.
Verðlaunaféð nemur 800 bandaríkjadölum, sem samsvarar um 111 þúsund krónum miðað við núverandi gengi, auk medalía sem veittar verða sigurvegurum í hverri deild. Keppt verður samkvæmt double-elimination fyrirkomulagi þar sem liðin þurfa að tapa tvisvar til að detta úr leik.
Flestar umferðir verða leiknar í best-of-3, en úrslitaleikurinn í best-of-5. Að auki er aðeins einum leikmanni í hverju liði heimilt að spila hvern karakter af tiltekinni tegund (Scout, Medic, Soldier o.s.frv.), og kort eru valin með pick-og-ban kerfi.
Skráning opnar 14. ágúst og lýkur 29. ágúst. Þeir sem skrá sig tímanlega tryggja sér sæti áður en riðlakeppnin hefst.
Post-Season Cup 2 lofar spennandi viðureignum þar sem samhæfing, tækni og taktík ráða úrslitum. Keppnin er kjörin fyrir þá sem vilja mæta sterkari til leiks þegar næsta tímabil hefst í Team Fortress 2.
Upplýsingar um keppnina má nálgast á Discord-þjóninum með því að smella hér.
Mynd: teamfortress.com




