Close Menu
    Nýjar fréttir

    PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí

    14.07.2026

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026
    1 2 3 … 352 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir

    Chef-Jack23.09.2025Uppfært04.11.20254 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir

    Helgina 20.–21. september fór fram sjöunda Ice Hammer ITC Grand Tournament mótið, sem haldið var í Salnum á Seltjarnarnesi. Þar mættu til leiks 34 spilarar og gerðu þetta að stærsta Warhammer 40k móti í sögu Íslands. Stemningin var mögnuð og keppnin harðari en nokkru sinni fyrr.

    Michael Hooper fór með sigur af hólmi eftir að hafa unnið alla fimm leikina og hreppti þar með aftur titilinn. Heiðar Þór Stefánsson náði öðru sæti og Aðalsteinn Sigurðsson, sem tryggði sér jafnframt ITC Íslandsmeistaratitilinn 2025 með Grey Knights hernum sínum, endaði í því þriðja.

    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir

    Auk þess hlutu fleiri verðskuldaðar viðurkenningar. Alli vann verðlaun fyrir best málaða her með stórkostlegum og umbreyttum Grey Knights her. Best málaða einstaka módel mótsins var Custodia Grav Tank hjá Bergi Jóhannssyni, málaður með glæsilegum marmaraáferð. Guðbrandur Magnússon fékk hins vegar stærstu viðurkenninguna, Samfélagsskjöld Ice Hammer 2025, fyrir ómetanlegt starf sitt við að efla Warhammer samfélagið hér á landi.

    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir

    „Ísland er með furðulega hátt hlutfall af góðum spilurum“

    Til að fá nánari innsýn í mótið og samfélagið fengum við Kristján Blöndal, betur þekktur sem „Warhammer Boss“, til að svara nokkrum spurningum.

    Fyrir þá sem þekkja ekki til, hvað er Ice Hammer ITC GT?

    „ITC stendur fyrir The International Tournament Circuit og Ice Hammer er hluti af því kerfi. Á heimsvísu eru haldin mót sem gefa stig og sex bestu mótin þín telja. Stigin ráðast af stærð og lengd móta og hvaða sæti þú nærð.

    Með því að keppa á Ice Hammer mótum geta íslenskir spilarar safnað stigum og borið sig saman við spilara út um allan heim.“

    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir

    Hvernig var keppnisfyrirkomulagið?

    „Á Grand Tournament móti eru spilaðar fimm umferðir yfir helgina, hver leikur tekur þrjár klukkustundir. Sigur setur þig í vinnings-bracket og síðan er staða ákveðin eftir stigum. Fullt hús gefur 100 stig, þar af 10 stig fyrir fullmálaðan her.

    Ísland er með ótrúlega mikið af sterkum spilurum miðað við stærð samfélagsins. Við köllum þetta stundum ‘shark tank’ mót, og það er líka gaman að segja frá því að fjórir spilarar komu frá Ungverjalandi til að taka þátt.“

    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir

    Hverjir sáu um dómgæslu?

    „Við leggjum áherslu á að spilarar reyni að leysa úr reglum í sameiningu. Annars er ég sjálfur á hlaupum með 40k appið í símanum að hjálpa með túlkun. Samfélagið er mjög gott í þessum efnum og ég er alltaf þakklátur fyrir það.“

    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir

    Kynjahlutfallið og framtíðin

    Af myndunum að dæma virðist þetta hafa verið ansi karlmannlegt mót. Er Warhammer bara fyrir stráka?

    „Það hefur vissulega fylgt Warhammer í gegnum tíðina að vera frekar gaurahobbý, hetjurnar eru genabreytt ofurmenni með tvö hjörtu og kremja hausa án þess að blikna.

    En við erum svo heppin að nokkrar konur taka þátt hjá okkur og einn besti spilari landsins er kona. Það væri frábært að sjá kynjahlutfallið jafnast út með tímanum.“

    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir
    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir

    Ef þú gætir útskýrt fyrir nýjum aðilum, hvernig fer svona mót fram?

    „Við höldum RTT mót í Spilasal Nexus einu sinni í mánuði, þrjár umferðir á einum degi. GT mótin eru hins vegar stærri og dreifast yfir tvo daga með fimm umferðum.

    Næsta stórmót verður haldið vorið 2026 og allar upplýsingar eru á Facebook síðunni okkar og BestCoastPairings.com.“

    Stærsta Warhammer mótið á Íslandi til þessa, stemning og myndir

    Sterkara en nokkru sinni

    Ice Hammer ITC GT VII markaði tímamót í sögu Warhammer á Íslandi. Aldrei hafa fleiri tekið þátt og aldrei hefur samfélagið staðið jafn sterkt. Með íslenska meistara á heimsvettvangi og alþjóðlega spilara að koma hingað til lands er ljóst að framtíðin er björt.

    Eins og Kristján sagði að lokum:

    „Þetta var stærsta mótið hingað til og næsta verður bara enn stærra.“

    Meðfylgjandi myndir tók Kristján Blöndal og eru birtar hér með góðfúslegu leyfi hans.

    Íslenskt efni picks Warhammer Warhammer 40.000
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí

    14.07.2026

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Íslenska PUBG samfélagið
      PUBG upphitunarskrimm haldið 26. júlí
      14.07.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.