Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Steypa fékk sér Skjálfta tattú á mótinu: „Ég vildi vera hluti af teyminu“
    Vinirnir þrír fönguðu stemninguna með Skjálfta-tattúi. Minning sem hverfur ekki. Símon, einn af þremur vinum sem fengu sér Skjálfta-tattú, sýnir afraksturinn með stolti.
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Steypa fékk sér Skjálfta tattú á mótinu: „Ég vildi vera hluti af teyminu“

    Chef-Jack13.10.2025Uppfært17.10.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Vinirnir þrír fönguðu stemninguna með Skjálfta-tattúi. Minning sem hverfur ekki.Símon, einn af þremur vinum sem fengu sér Skjálfta-tattú, sýnir afraksturinn með stolti.
    Vinirnir þrír fönguðu stemninguna með Skjálfta tattúi. Minning sem hverfur ekki.

    Það eru margar leiðir til að sýna stuðning við viðburð, en 29 ára gamli leikmaðurinn Sigurður Grétar, betur þekktur undir nickinu Steypa, ákvað að ganga alla leið. Hann lét flúra á sig Skjálfta táknið á meðan LANmótið stóð sem hæst.

    „Mig langar að kenna og þakka artistanum fyrir að vera bæði góður sölumaður og enn betri flúrari,“

    segir Steypa í samtali við esports.is með bros á vör.

    „En þetta var í raun sameiginleg hugmynd frá okkur strákunum, flúraranum og Atla hjá RÍSÍ.“

    Vinirnir þrír fönguðu stemninguna með Skjálfta-tattúi. Minning sem hverfur ekki. Símon, einn af þremur vinum sem fengu sér Skjálfta-tattú, sýnir afraksturinn með stolti.

    Þetta var fyrsti Skjálftinn sem Steypa tók þátt í, en hann segist þegar finna að viðburðurinn hafi sérstakan anda.

    „Ég hef mikla trú á að Skjálfti verði stærsta og glæsilegasta LAN-mót sem haldið hefur verið hér á landi. Allt teymið á bak við viðburðinn vinnur af ótrúlegum áhuga og metnaði, og það er nú þegar farið að tala um næsta ár,“

    segir hann.

    „Ég vildi einfaldlega verða hluti af þessu teymi, þess vegna stimplaði ég mig með flúrinu.“

    Steypa spilar aðallega Counter-Strike 2 og Valorant, og er ekki ókunnugur flúrum.

    „Ég er með nokkur fyrir, en þetta er það fyrsta sem tengist tölvuleikjaheiminum,“

    segir hann.

    Vinirnir þrír fönguðu stemninguna með Skjálfta-tattúi. Minning sem hverfur ekki. Símon, einn af þremur vinum sem fengu sér Skjálfta-tattú, sýnir afraksturinn með stolti.
    Símon, einn af þremur vinum sem fengu sér Skjálfta-tattú, sýnir afraksturinn með stolti.

    Fjölskyldan tók fréttunum af ró.

    „Ég er týpískur til að taka svona skyndiákvarðanir, þannig að þetta truflaði ekki svefninn hjá neinum,“

    segir hann kíminn.

    Aðspurður hvort hann hafi einhverjar hugmyndir eða óskir fyrir næsta Skjálfta svarar hann ákveðið:

    „Ég veit að strákarnir sem standa að Skjálfta eru með stór plön fyrir næsta LAN, og ég hlakka bara til að sjá útkomuna.“

    picks Rafíþróttasamband Íslands Skjálfti
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.