
Mikil spenna ríkti í síðustu umferðum Íslandsmótsins í parasveitakeppni í bridds þar sem keppni hinna efstu var jöfn og spennandi og margar öflugar sveitir gátu orðið Íslandsmeistarar, allt fram að síðustu spilum. Þegar yfir lauk reyndist sveit Strengs hlutskörpust og er því Íslandsmeistari í parasveitakeppni 2025. Í sigursveitinni spiluðu María Haraldsdóttir Bender-Stefán Stefánsson og Harpa Fold Ingólfsdóttir, Vignir Hauksson, auk þess sem Skúli Skúlason spilaði einnig í sveitinni.
Í fréttatilkynningu frá Bridgesambandi Íslands kemur fram að í parasveitakeppni mynda einstaklingar af ólíku kyni makkerskap. Mótið þykir fyrir vikið sérlega skemmtilegt og aðsókn var góð. Konur hafa verið í miklum meirihluta nýrra briddspilara undanfarið og verða æ sterkari í þessari íþrótt sem einu sinni var að mestu karlasport. Spilað var helgina 06.-07. desember sl. Í húsnæði BSÍ, Síðumúlanum.
Í öðru sæti á mótinu varð sveit Bjarts. Hana skipa hjónin Svanhildur Hall, Sigurður Skagfjörð og Dagbjört Hannesdóttir, Karl G Karlsson. Dagbjört náði með silfrinu að komast upp yfir 100 meistarastig í bridds.
í þriðja sæti varð sveit Ljósbrár Baldursdóttur en í henni spiluðu tvö hjónapör. Annars vegar Ljósbrá Baldursdóttir- Matthías Þorvaldsson og hins vegar Hjördís Sigurjónsdóttir, Kristján Blöndal.
Mörg stórmót eru fram undan hjá briddsurum, enda stendur spilavertíðin nú sem hæst. Er vert að minna á jólamót víða og í lok janúar fer fram Reykjavík Bridge Festival í Hörpu. Bridgesamband Íslands hvetur íslenska spilara til að fjölmenna á mótið en margir að sterkustu spilurum heims koma frá útlöndum, Mótið er eitt það öflugasta sem haldið er ár hvert í heiminum og gaman að það sé opið íslenskum almenningi.
Þá má minna á að Úrvalsdeildin í bridds undir hatti Rafíþróttanna hjá Símanum hefur göngu sína á ný eftir stutt hlé í byrjun febrúar.
Mynd: bridge.is



