
Mynd: Bridgesamband Íslands.
Tvær briddssveitir eru enn taplausar í Úrvalsdeildinni, sem fer fram í beinni útsendingu á Sjónvarpi Símans undir hatti rafíþrótta.
Sveit Grant Thornton er önnur þeirra, hin er sveit Gunnlaugs Sævarssonar.
Margar sveitir hafa fallið út síðustu vikur eftir tvö töp, en hver sveit má tapa einu sinni án þess að til útsláttar komi.
Sveitirnar sem enn halda velli eru auk tveggja fyrrnefndu:
Búið er að draga í næstu umferð í Úrvalsdeildinni.
Seniorar sem spila næsta sjónvarpsleik klukkan 19 á Símanum gegn Málningu.
Sveit Gabríels Gíslasonar leikur gegn Team Akureyri.
Doktorinn á bardaga við Færeyjar, sem er skipað bestu mönnum vina okkar í suðri og hafa Færeyingarnir reynst mjög öflugir.
Ósigruðu sveitirnar berjast svo innbyrðis í vikunni einnig, sveit Gunnlaugs gegn Grant Thornton.
Þeir sem eru ekki með Sjónvarps Símans geta séð leikina á Twitch eða Youtube. Hlekkur birtur á facebook-síðu Bridgesambands Íslands, Bridgespjallinu, skömmu fyrir hvern leik.


