Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Twitch kynnir spennandi nýjungar fyrir árið 2025: Meiri tekjumöguleikar
    Twitch - Logo
    Tölvuleikir

    Twitch kynnir spennandi nýjungar fyrir árið 2025: Meiri tekjumöguleikar

    Chef-Jack17.04.20253 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Twitch - Logo

    Twitch undir forystu Dan Clancy forstjóra hefur opinberað framtíðarsýn sína fyrir árið 2025 með ítarlegu bréfi til samfélagsins.  Áhersla verður lögð á að styrkja stöðu streymara, efla samfélag Twitch og bæta notendaupplifun bæði á vef og í farsímum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá twitch.tv.

    Endurskoðun 2024: Styrking samstarfs og aukin tekjumöguleikar

    Árið 2024 var viðburðaríkt hjá Twitch, þar sem lykilverkefni eins og Creator Clubs voru hleypt af stokkunum til að auðvelda samstarf milli streymara.  Jafnframt voru fjárfestingar í samstarfi á borð við Stream Together og Shared Chat auknar.  Þá var Plus Program endurbætt til að veita streymurum betri hlutfallslega hlutdeild í tekjum sínum, sem leiddi til fjórföldunnar í fjölda samstarfsaðila sem nýttu sér bætt kjör.

    Ný kerfi fyrir 2025: Tekjur, áhorf og upptökur

    Samstarf og auknar tekjur: Twitch hyggst auðvelda samstarf milli streymara með því að kynna Shared Hype Trains og möguleika á sameiginlegum áskriftarmarkmiðum. Einnig verður hægt að stjórna sameiginlegum spjall-fundum beint úr farsímaappinu, sem einfaldar samskipti í raunheimum.

    Bætt áhorf í farsímum: Með nýju Enhanced Broadcasting kerfi verður hægt að streyma bæði lárétt og lóðrétt efni, allt eftir staðsetningu símans. Þá verður unnið markvisst að því að bæta leit og uppgötvun efnis með hraðari hleðslu og betri gæðum efnis sem boðið er upp á.

    Öflugri klippuforrit: Twitch mun gera það auðveldara að búa til, klippa og deila klippum með áherslu á sjálfvirka greiningu á hápunktum streymis. Þannig geta streymarar deilt bestu augnablikunum sínum strax að lokinni útsendingu.

    Opnun tekjumöguleika: Frá og með 2025 fá flestir streymarar aðgang að áskriftum og Bits frá fyrsta degi, sem gerir nýjum streymurum kleift að hefja tekjuöflun strax.

    Spons og samstarf: Twitch mun kynna nýtt kerfi sem auðveldar samskipti milli streymara og vörumerkja, sem og nýjar leiðir fyrir styrktarsamstarf, þar á meðal útvíkkun á Sponsored Subscriptions.

    Viðburðir og samfélagsstuðningur

    Twitch ætlar að halda úti fleiri kynningum á borð við afslætti á áskriftum. Fyrsta kynning ársins var 27. til 31. mars með 35% afslætti af gjafaáskriftum (bundles af 5 eða fleiri).

    Einnig verður kynnt ný aðgerð þar sem áhorfendur geta brugðist við ákveðnum augnablikum í streymi með Bits og þannig skapað sérstakar sameiginlegar stundir.

    Samfélagsstuðningur: Unity Guilds og Ambassadors

    Á árinu 2024 óx þátttaka í Unity Guilds um 142%, og 2025 verður þessari þróun haldið áfram með fjölgun tungumála og auknu aðgengi fyrir streymara víðs vegar að úr heiminum. Þá verður Ambassador áætlunin tvöfölduð með áherslu á vöxt í svæðum eins og Suður-Ameríku (LATAM).

    Öryggi og skýrar reglur

    Endurbætur á skráningu brota: væg brot fyrnast með tímanum, á meðan alvarleg brot verða áfram varðveitt í kerfinu. Þá verður streymurum veitt betri yfirsýn yfir þær aðgerðir eða ummæli notenda sem leiddu til brota.

    Jútúbarinn Zach Bussey fjallar ítarlega um helstu breytingarnar sem boðaðar hafa verið í meðfylgjandi myndbandi:

    https://www.youtube.com/watch?v=4XR6jR6_4pw

    Þessi frétt er unnin upp úr ábendingu frá meðlimi í Facebook-hópnum Tölvuleikir, mót & fréttir.

    Mynd: Twitch.tv

    Twitch Zach Bussey
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.