Úrvalsdeildin í Bridge hefst á morgun 5. september og stendur yfir til 14. nóvember, þegar úrslitin fara fram.
Keppt verður í Round Robin fyrirkomulagi þar sem öll liðin mætast og hvert stig vegur þungt í baráttunni um sæti í úrslitum.
Keppnina skipuleggja Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) í samstarfi við Bridgesamband Íslands. Stefnt er að faglegri framkvæmd og vönduðu umhverfi fyrir keppendur, enda hefur deildin á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af burðarstöðum íslenskrar spilamenningar.
Mynd: pixabay.com




