Vormót í tölvuleiknum Apex Legends fer fram laugardaginn 21. mars næstkomandi og hefst keppni klukkan 14.00.
Að þessu sinni hafa mótshaldarar ákveðið að hafa svokallað 60 stiga match point kerfi í keppninni. Slíkt fyrirkomulag hefur notið vinsælda í stærri mótum leiksins þar sem lið þurfa að ná ákveðnum stigafjölda áður en þau geta tryggt sér sigur með lokasigri í leik. Fyrir vikið skapast oft mikil spenna þegar mótið nálgast lokastigin.
Eins og áður segir, þá fer mótið fram laugardaginn 21. mars klukkan 14.00 og verður streymt í beinni útsendingu á Twitch rásinni GameTíví, þar sem áhorfendur geta fylgst með helstu viðureignum dagsins.
Skráning stendur yfir fyrir einstaklinga sem vilja taka þátt sem svokallaðir solos og mynda lið með öðrum spilurum. Lið sem þegar eru skipuð geta hins vegar skráð sig í gegnum liðsskráningu hér.
Áhugafólk um Apex Legends á Íslandi hefur síðustu ár sýnt mótum af þessu tagi mikinn áhuga og má því búast við fjörugri keppni þegar spilun hefst síðdegis þann 21. mars.
Mynd: Steam / Apex Legends




