[show-logos orderby='none' category='styrktaradilar' activeurl='new' style='boxhighlight' interface='grid' tooltip='false' description='false' limit='3' filter='false' ]
Heim / PC leikir / Ásókn í Diablo 3 olli hruni
Auglýsa á esports.is?

Ásókn í Diablo 3 olli hruni

Í Diablo stjórnar leikmaðurinn ólíkum hetjum í stríðinu við hið illa

Þriðja útgáfa af Diablo tölvuleiknum var gefin út í vikunni sem tölvuleikjarisinn Blizzard framleiðir. Ríflega áratugur er síðan önnur útgáfa leiksins kom út, seldist í tæplega 20 milljónum eintaka og vann til fjölda verðlauna.

Leikurinn er hasar- og hlutverkaleikur þar sem leikmaðurinn kannar framandi dýflissur og hittir þar fyrir hin ýmsu skrímsli og kynjaverur, en frá þessu greinir mbl.is.

Til að spila leikinn þarf leikmaðurinn að auðkenna sig með innskráningu en opnað var fyrir innskráningar á sama tíma í öllum löndum Evrópu. Þúsundir leikmanna reyndu þá að skrá sig inn í leikinn með þeim afleiðingum að netþjónar framleiðanda leiksins þoldu ekki álagið og hrundu að því er breska blaðið Guardian greinir frá. Óþreyjufullir aðdáendur leiksins þurftu því að bíða ögn lengur en áætlað var eftir því að geta spilað hann.

Að sögn Arnar Barkarsonar, vörustjóra afþreyingarefnis hjá Elko, var eftirvæntingin eftir þessari þriðju útgáfu leiksins mikil og hafði nokkur fjöldi þannig forpantað hann hjá versluninni. „Við höfum ekki séð svona góðar viðtökur við PC-leik síðan aukapakki fyrir World of Warcraft kom út“ sagði Örn og bætti við að verslunin hefði verið með sérstaka kvöldopnun þar sem nokkur hundruð spilarar hafi komið og þegið veitingar um leið og þeir tryggðu sér eintak af leiknum, segir að lokum á mbl.is.

Mynd: Blizzard Entertainment

Fylgstu með eSports.is á facebook hér.

 

Um Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara

Netfang verður ekki birt

x

Check Also

Merki eSports.is - Logo

Fréttir alla daga, alla mánuði – 17 ára saga – eSports.is þjónustar íslenska leikjamenningu

Frá árinu 2008 hefur eSports.is, ...