
Í vikunni bauð GameTíví upp á beina útsendingu þar sem tölvuleikurinn Death Stranding 2 var spilaður í fyrsta sinn á rásinni. Þeir Óli Jóels og Dói leiddu áhorfendur í gegnum fyrstu þrjá tímana af leiknum og reyndist streymið bæði spennandi og skemmtilegt, með óvæntum uppákomum og glaðningum.
Streymið hófst á því að Óli þakkaði áhorfendum kærlega fyrir að mæta og fylgjast með. Í kjölfarið sagði hann frá söguþræði leiksins í ítarlegri frásögn sem vakti forvitni Dóa, sem spurði spurninga af miklum áhuga.
Á meðan á streymi stóð tilkynnti Óli einnig að þættirnir Nörd vikunnar muni snúa aftur í haust. Þar fá áhorfendur tækifæri til að senda inn myndir af sínum leikjasetupum og keppa um veglega vinninga fyrir það flottasta.
Að þessu sinni var dregið í happdrætti þar sem vinningar að verðmæti 50.000 króna voru í boði. Meðal þeirra var glæsileg Death Stranding 2 Collector’s Edition með sérstakri styttu úr leiknum, auk Domino’s pizzukúpons. Sá heppni sem hreppti vinninginn var Akris.

Eitt óvæntasta augnablik kvöldsins átti sér stað þegar Dói birtir óvart einkaskilaboð í beinni útsendingu. Þar kom fram að hann er á leið í ferð til Kölnar í Þýskalandi síðar í sumar, þar sem stærsti tölvuleikjaviðburður heims, Gamescom, fer fram dagana 20.–24. ágúst. Nú er bara að vona að GameTíví fylgi Dóa og bjóði upp á beinar útsendingar frá viðburðinum.
Spennandi og óhefðbundinn leikur – vert er að horfa á streymið frá GameTíví, þar sem einnig má sjá óvænt einkaskilaboð. Smellið hér til að horfa á streymið á facebook.
Myndir: skjáskot úr beinu útsendingunni