Close Menu
    Nýjar fréttir

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    1 2 3 … 354 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Skjálfti 2025: Dagskráin klár, stútfull helgi af leikjum, stemningu og skemmtun
    Keppnisdagskrá Skjálfta klár
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Skjálfti 2025: Dagskráin klár, stútfull helgi af leikjum, stemningu og skemmtun

    Chef-Jack23.09.2025Uppfært24.09.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Keppnisdagskrá Skjálfta klár

    Rafíþróttahátíðin Skjálfti 2025 fer fram í Digranesi í Kópavogi dagana 26.–28. september og er helgin stútfull af spennandi viðureignum. Skipuleggjendur hafa nú birt keppnisdagskrána og ljóst að gestir fá úrval af vinsælustu leikjum nútímans.

    Á föstudeginum hefst fjörið með Guilty Gear Strive klukkan 18, áður en fyrstu viðureignir í Counter-Strike 2 og League of Legends taka yfir kvöldið fram á nótt.

    Laugardagurinn verður sannkölluð veisla fyrir keppnisþyrsta spilara. Þar er á dagskrá Smash Bros Melee, Fortnite, Apex Legends, Smash Bros Ultimate, Action Quake og ekki má gleyma klassísku Counter-Strike 1.6. Allt frá hádegi og fram eftir kvöldi mun íþróttasalurinn í Digranesi bergmála af fagnaðarlátum og spennu.

    Á sunnudeginum taka svo úrslitaleikirnir við. Fyrst í League of Legends og Counter-Strike 2, áður en verðlaunaafhendingar klára hátíðina með pompi og prakt.

    Þeir sem vilja tryggja sér sæti á stærsta rafíþróttamóti landsins geta enn skráð sig. Það er opið fyrir nýja þátttakendur og greiðsla fer einfaldlega fram á staðnum.

    Skipuleggjendur minna á að Skjálfti er ekki aðeins keppni heldur hátíð þar sem áhugafólk um tölvuleiki kemur saman, spilar, fylgist með og fagnar menningunni sem vex með hverju árinu.

    Stemning og skemmtun fyrir alla gesti

    Stemmings dagskrá Skjálfta klár

    Það verður nóg um að vera fyrir alla sem leggja leið sína í Digranes um helgina. Skjálfti er ekki einungis keppni heldur sannkölluð hátíð þar sem stemningin ræður ríkjum. Á laugardeginum má búast við sýningarleikjum í bæði Counter-Strike og League of Legends, auk sérstakrar Apex skemmtunar sem ber nafnið Rauðvín og klakar.

    Fjölbreyttir básar verða á svæðinu, þar á meðal frá Ljósleiðaranum, Lenovo, Red Bull og Pizzan, auk námsbás Esportian. Þetta er því jafn mikið samfélagshátíð og það er keppni.

    Best er að minna á að frítt er inn fyrir alla áhorfendur og áhugasama. Þeir sem vilja LAN-a geta enn skráð sig og borgað á staðnum, þannig að enginn þarf að missa af.

    Action Quake Apex Legends Counter Strike 2 Counter-Strike 1.6 Fortnite Battle Royale Guilty Gear Strive League of Legends Mót framundan picks Rafíþróttasamband Íslands Skjálfti Super Smash Bros
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026

    Liðsstjóramót í Apex Legends

    13.08.2026

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026
    Við mælum með

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026

    Ísland keppir í Apex Nations Cup

    30.07.2026

    Ný rafíþróttaaðstaða á Húsavík

    30.07.2026
    1 2 3 … 11 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.