
Mynd: AndyCollegian / Wikimedia Commons / CC BY 2.0.
Netflix vinnur að gerð leikinnar sjónvarpsþáttaraðar sem byggð verður á hinum vinsæla tölvuleik PUBG: Battlegrounds. Bandaríski leikarinn Donald Glover mun fara með aðalhlutverk í þáttunum, auk þess að sjá um leikstjórn, handritsgerð og framleiðslu.
Frá þessu greindi bandaríski fréttamiðillinn Deadline, en suðurkóreska leikjafyrirtækið Krafton, sem stendur á bak við PUBG, staðfesti jafnframt verkefnið í opinberri tilkynningu.
Bræðurnir vinna saman að þáttunum
Donald Glover er meðal annars þekktur fyrir sjónvarpsþættina Atlanta, Community og Mr. & Mrs. Smith. Hann hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín, þar á meðal Emmy- og Golden Globe-verðlaun.
Bróðir hans, Stephen Glover, mun einnig koma að gerð þáttanna sem handritshöfundur og framkvæmdaframleiðandi. Bræðurnir hafa áður unnið saman að nokkrum sjónvarpsverkefnum, þar á meðal Atlanta.
Aðrir framkvæmdaframleiðendur verða Michael Schaefer fyrir NEON TV, Fam Udeorji fyrir Gilga og þau Taeseok Jang og Sujin Lee fyrir LV3H, sem er framleiðslufyrirtæki á vegum Krafton.
PUBG kom fyrst út árið 2017

Mynd: Krafton
Tölvuleikurinn PUBG kom fyrst út árið 2017 undir heitinu PlayerUnknown’s Battlegrounds og átti stóran þátt í að gera svokallaða battle royale-leiki vinsæla um allan heim.
Í leiknum keppa allt að 100 leikmenn á sama korti þar sem markmiðið er að lifa af og standa uppi sem síðasti leikmaðurinn eða síðasta liðið. Leiksvæðið minnkar eftir því sem líður á leikinn og neyðir keppendur til að takast á við hver annan.
PUBG hefur notið mikilla vinsælda frá útgáfu og hefur meðal annars sett sjö heimsmet sem skráð hafa verið í Heimsmetabók Guinness.
Enginn frumsýningardagur ákveðinn
Enn hefur ekki verið greint frá söguþræði þáttanna eða hvaða aðrir leikarar muni taka þátt í verkefninu.
Þá liggur heldur ekki fyrir hvenær tökur hefjast eða hvenær þáttaröðin verður frumsýnd á Netflix.
Með verkefninu hyggst Krafton færa PUBG út fyrir tölvuleikjaheiminn og nýta vinsældir leiksins til að þróa nýtt afþreyingarefni fyrir sjónvarp.



