Bókmenntahátíðin Iceland Noir snýr aftur í nóvember 2025 og það með glæsibrag. Á meðal aðalgesta verður enginn annar en George R.R. Martin, höfundur „A Song of Ice and Fire“ heimsins sem Game of Thrones spratt úr og hefur nýlega fært sagnalist sína yfir í leikjaheiminn með Elden Ring.
Hátíðin fer fram í hjarta Reykjavíkur dagana 12. til 15. nóvember, þegar svartasta skammdegið hefur tekið yfir. Þá sameinast rithöfundar, leikjahönnuðir, kvikmyndagerðarmenn og sögumenn úr öllum áttum í því sem skipuleggjendur lýsa sem „hátíð sköpunar í myrkri“.
Iceland Noir var stofnuð árið 2013 af Ragnari Jónassyni og Yrsu Sigurðardóttur, upphaflega sem vettvangur glæpasagna. En eins og góð saga hefur hátíðin vaxið, þróast og tekið á sig ný form. Nú teygir hún anga sína til kvikmynda, sjónvarps, leikja og annarra miðla þar sem sagan lifir.
Að fá George R.R. Martin til landsins er viðburður út af fyrir sig. Hann er ekki aðeins goðsögn í bókmenntum heldur hefur hann einnig markað spor í tölvuleikjaheiminum með samstarfi sínu við FromSoftware í Elden Ring, þar sem hann mótaði sjálfan sagnagrunn heimsins, hinn dularfulla Lands Between.
Þar sameinuðust tveir risar í frásagnarlist: Martin, höfundur sem kann listina að sýna hetjur og illmenni í sömu mynd og Hidetaka Miyazaki, hönnuður Dark Souls-leikjanna, þekktur fyrir dularfulla og ógnvekjandi heima. Elden Ring varð afrakstur þess samstarfs og hlaut nafnbótina Game of the Year 2022.
Það verður því áhugavert að sjá hvort Martin veki áhuga hátíðargesta á því hvernig sagnalist og leikjahönnun geta runnið saman, hvernig orð geta orðið að heimum sem leikmenn ganga inn í.
Sögur, kvikmyndir og fleiri heimsfræg nöfn
Á meðal annarra gesta sem þegar hafa verið tilkynntir eru Colm Tóibín, Eliza Reid, Hwang Dong-Hyuk (leikstjóri Squid Game), Siri Hustvedt, Hildur Knútsdóttir, Emily St. John Mandel, Satu Rämö og Andri Snær Magnason. Fjölbreytnin er því mikil, og dagskráin lofar samruna myrkurs og sköpunar á öllum sviðum.
Miðar á Iceland Noir veita aðgang að öllum viðburðum og viðtölum, auk aðgang að klúbbnum Kjarval, sem verður eins konar félagsmiðstöð hátíðarinnar. Dagsviðburðir fara fram í minni sölum víða um miðbæinn og eru fyrstur kemur, fyrstur fær, en kvölddagskráin fer fram í stærri sölum þar sem miðahafar tryggja sér sæti.
Frá Westeros til Reykjavíkur
Það er eitthvað fallega táknrænt við það að höfundur heims sem býr undir endalausum vetri og sífelldu myrkri skuli nú heimsækja land þar sem myrkrið sjálft er orðið hluti af þjóðarsálinni. Iceland Noir 2025 lofar því ekki aðeins bókmenntahátíð, heldur ferðalagi inn í sagnalist myrkursins, þar sem George R.R. Martin stendur í miðju sviðsljóssins eða öllu heldur skuggaljóssins.





