Close Menu
    Nýjar fréttir

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»Sögulegur viðburður: Íslensk leikjafyrirtæki sameinast í fyrsta sinn á einum stað
    Sögulegur viðburður: Íslensk leikjafyrirtæki sameinast í fyrsta sinn á einum stað - Icelandic Game Fest-2025
    Tölvuleikir

    Sögulegur viðburður: Íslensk leikjafyrirtæki sameinast í fyrsta sinn á einum stað

    Chef-Jack21.11.2025Uppfært22.11.20252 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Sögulegur viðburður: Íslensk leikjafyrirtæki sameinast í fyrsta sinn á einum stað - Icelandic Game Fest-2025

    Í fyrsta sinn í sögu íslensks tölvuleikjaiðnaðar sameinast helstu leikjafyrirtæki landsins á einum stað til að kynna leiki sína, bæði nýlega titla og þá sem enn eru í vinnslu. Á morgun, laugardaginn 22. nóvember, frá klukkan 12 til 16 breytist Arena Gaming á Smáratorgi í einstaka leikjasmiðju þar sem gestir fá að sjá hvað kraumar undir lokinu hjá íslenskum hönnuðum.

    Fyrirtækin sem taka þátt eru 1939 Games, Mainframe Industries, Porcelain Fortress, CCP Games, Parity og Myrkur Games. Þetta er í fyrsta sinn sem öll þessi nöfn stilla sér upp hlið við hlið og opna glugga inn í íslenska leikjagerð sem hefur vaxið hratt á undanförnum árum.

    Gestum gefst kostur á að prófa fjölbreytta leiki á yfir hundrað tölvum, hitta hönnuðina á staðnum og sjá kraftinn í íslenskri leikjasenu með eigin augum.

    Viðburðurinn er öllum opinn og ókeypis. Að baki honum standa IGI – Icelandic Gaming Industry, í samstarfi við Samtök iðnaðarins og Íslandsstofu. Arena Gaming verður einungis tileinkað þessum viðburði þennan eina dag og því ættu áhugasamir gestir ekki að láta þetta frá sér fara.

    Samhliða þessu fer fram sérstakur kynningarviðburður á forsíðu Steam um helgina sem varpar ljósi á íslenska tölvuleiki og verkefni þar sem íslenskir framleiðendur koma að.

    Facebook viðburður hér.

    1939 Games CCP Games IGI – Icelandic Gaming Industry Íslandsstofa Íslenskt efni Mainframe Myrkur Games Parity Porcelain Fortress Samtök iðnaðarins steam
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026

    Bancho snýr aftur í eldhúsið

    12.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Birkir Fannar - Leikjarinn kveður Twitch eftir 15 ára streymi
      Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár
      14.06.2026
    • Grand Theft Auto: VI
      Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku
      18.06.2026
    • Rafíþróttasamband Íslands - RÍSÍ - Logo
      Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli
      16.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.