Í fyrsta sinn í sögu íslensks tölvuleikjaiðnaðar sameinast helstu leikjafyrirtæki landsins á einum stað til að kynna leiki sína, bæði nýlega titla og þá sem enn eru í vinnslu. Á morgun, laugardaginn 22. nóvember, frá klukkan 12 til 16 breytist Arena Gaming á Smáratorgi í einstaka leikjasmiðju þar sem gestir fá að sjá hvað kraumar undir lokinu hjá íslenskum hönnuðum.
Fyrirtækin sem taka þátt eru 1939 Games, Mainframe Industries, Porcelain Fortress, CCP Games, Parity og Myrkur Games. Þetta er í fyrsta sinn sem öll þessi nöfn stilla sér upp hlið við hlið og opna glugga inn í íslenska leikjagerð sem hefur vaxið hratt á undanförnum árum.
Gestum gefst kostur á að prófa fjölbreytta leiki á yfir hundrað tölvum, hitta hönnuðina á staðnum og sjá kraftinn í íslenskri leikjasenu með eigin augum.
Viðburðurinn er öllum opinn og ókeypis. Að baki honum standa IGI – Icelandic Gaming Industry, í samstarfi við Samtök iðnaðarins og Íslandsstofu. Arena Gaming verður einungis tileinkað þessum viðburði þennan eina dag og því ættu áhugasamir gestir ekki að láta þetta frá sér fara.
Samhliða þessu fer fram sérstakur kynningarviðburður á forsíðu Steam um helgina sem varpar ljósi á íslenska tölvuleiki og verkefni þar sem íslenskir framleiðendur koma að.




