
Dagur þrjú í ferðabloggi Icenosi og Kassa í Búdapest markaði sannkallaðan vendipunkt. CS2 Major mót ársins 2025 fór loks af stað með látum og félagarnir voru mættir snemma á svæðið, tilbúnir að taka stemninguna alla leið inn í IRL-streymi dagsins.
„Major dagur. Þetta var rosalegt. Stemningin var gríðarleg,“
segir Icenosi og lýsir því hvernig þeir mættu um eitt leytið til að fá staðfestingu á að mega streyma inni á svæðinu. Um leið og grænt ljós fékkst var ekkert annað í stöðunni en að kafa beint ofan í upplifunina.

Fyrsti viðkomustaður var Monster Energy básinn þar sem boðið var upp á fría orkudrykki og ýmsa leiki. Icenosi skellti sér meðal annars í Nerf-keppni þar sem skjóta þurfti hringi til að safna stigum. Sá gjörningur rataði að sjálfsögðu beint í Twitch klippur og vakti talsverða lukku meðal áhorfenda.
Næst lá leiðin að Zowie básnum þar sem þétt setinn hópur áhrifavalda var að stilla sér upp í 2v2 viðureignir. Þar bar einnig á kunnuglegu andliti, Oztriker, fyrrum CSGO þjálfara liða á borð við 3DMAX, Falcons og aAa, auk þess sem hann á rætur sínar að rekja til franska Counter Strike Source tímabilsins. Smá nördaaugnablik sem fer aldrei forgörðum á svona stórviðburðum.
Eftir smá rölt og spjall tóku félagarnir pásu og gripu sér pizzu. Sú ákvörðun reyndist tímafrekari en ætlað var þar sem það tók um hálftíma að fá eina litla pizzu í hendurnar. Þegar loks var haldið inn í salinn blasti hins vegar eitthvað allt annað við.
WOOOW augnablikið. Stærðin, LED skjáirnir og sviðið sem lítur út eins og sci-fi set.
Wave-ið fer hring eftir hring og allir taka þátt.
„WOOOW. Salurinn er rosalegur. Svakalega stór og fáránlega flottur með ljósum og LED skjám,“
segir Icenosi og er þar vart að ýkja. Skömmu síðar bættist Stebbi Jwalker í hópinn ásamt eiginkonu sinni og settust þau saman í stúkuna. Opnun mótsins var engu lík. Lifandi trommur, bakspor og rafmagnað andrúmsloft sem minnti frekar á tónleika en hefðbundinn esports viðburð.
Kassi fer út að fá sér loft. Hurðin opnast og sígarettuskýið slær í andlitið.
Fyrsti leikur dagsins var viðureign Team Spirit og Falcons. Spirit sýndu yfirburði sína og kláruðu leikinn með 2:0 sigri. Að leik loknum varð smá aðskilnaður í hópnum þegar Kassi skellti sér út að ná sér í ferskt loft, sem reyndist allt annað en ferskt.
„Hann opnaði hurðina og labbaði beint inn í vímu. Ekki alvöru vímu, bara svakaleg sígarettulykt,“
segir Icenosi og hlær, enda var sígarettuskýið fyrir utan orðið hluti af upplifuninni.
Sjálfur hélt hann aftur í átt að Zowie básnum þar sem boðið var upp á opnar 2v2 viðureignir og lét hann vaða í eina slíka. Á sama tíma var Jwalker enn að bíða eftir pizzu sem virtist aldrei ætla að skila sér. Meðan á biðinni stóð var walk-in hjá Mongolz og Team Vitality hafið og stemningin í salnum fór upp á næsta stig.
Vitality mætir inn. Salurinn tryllist og trommurnar keyra stemninguna upp.
„Það var mjög ruglað að heyra fólk öskra á Vitality og kalla ‘fo** jú Apex’,“
segir Icenosi. Hitinn í leiknum var mikill, chöntin dundu yfir og svokölluð wave fór nokkra hringi um stúkuna þar sem ótrúlega margir tóku þátt. Team Vitality voru sterkari aðilinn og kláruðu leikinn einnig 2:0.
FURIA aðdáendur byrja að stilla upp stemningu fyrir næsta dag. Peppið fer ekki í frí.
Á leiðinni út tóku þeir eftir hópi FURIA aðdáenda sem voru þegar byrjaðir að peppa sig upp fyrir næsta dag, en þá mætir liðið NAVI í einum af mest spennandi leikjum mótsins.
Kvöldið endaði á rólegri nótum. Félagarnir héldu upp á hótel, pöntuðu sér góðan kvöldmat og lögðust síðan til svefns eftir langan og viðburðaríkan dag.
Dagur þrjú í Búdapest staðfesti eitt. CS2 Major er ekki bara mót, heldur upplifun. Og Icenosi og Kassi eru mættir til að sýna hana alla, bæði innan og utan sviðsljóssins, í daglegu IRL-streymi beint frá hjarta rafíþróttanna.
IRL streymi
Smellið hér –>> Hér höldum við utan um allar frásagnir þeirra og uppfærslur.
Myndir og vídeó: Icenosi



