
Spænski League of Legends spilarinn Óscar „Oscarinin“ Muñoz Jiménez, er kominn á frjálsan markað eftir að hafa yfirgefið Fnatic. Félagið staðfesti í gær, á gamlársdag, að samstarfinu væri lokið fyrir komandi LEC tímabil, og þar með lýkur rúmlega þriggja ára kafla þar sem Oscarinin var einn af burðarstoðum liðsins.
After over 3 years in Black & Orange, we say our farewells to @OscarininXD.
Climbing your way up from the academy roster, you’ve shown us perseverance and commitment each and every year. We’re so grateful to have been a part of your journey and will never forget the memories… pic.twitter.com/2bwDRCPeYu
— FNATIC (@FNATIC) December 31, 2025
Oscarinin greindi jafnframt frá brottförinni á samfélagsmiðlum og sagði að hann myndi hvorki leika í LEC né fyrir Fnatic á næsta split-i. Hann hyggst í staðinn leggja áherslu á streymi og SoloQ, með það að markmiði að vinna sér inn nýtt tækifæri í LEC þegar rétti glugginn opnast.
Fnatic hefur þegar kynnt nýjan leikmann og breytingin fellur að stærri endurskipulagningu hjá félaginu eftir krefjandi keppnisár. Oscarinin stendur eftir sem ungur en reynslumikill LEC-leikmaður sem hefur sannað sig á stóra sviðinu, og nú er spurningin einföld. Hvar lendir hann næst?
Mynd: fnatic.com



