
Mynd: pixabay.com
UTmessan, þar sem allt tengist, fer fram dagana 6. og 7. febrúar 2026 í Harpa og lofar að verða ein stærsta og líflegasta tæknisamkoma ársins á Íslandi. Þar mætast áhugafólk, fagfólk og forvitnir gestir til að kynna sér það nýjasta sem er að gerast í tölvu og tækniheiminum og fá innsýn í framtíð greinarinnar.
Dagskrá 2. til 5. febrúar
Viðburðurinn spannar heila viku og hefst á svokallaðri UTmessuviku dagana 2. til 5. febrúar þegar tæknifyrirtæki víðs vegar um borgina bjóða upp á fróðlega viðburði, kynningar og opið hús. Dagskráin er fjölbreytt og miðar að ólíkum aldurshópum. Aðgangur er almennt ókeypis þó sums staðar kunni að þurfa skráningu.
Dagskrá 6. febrúar
Föstudaginn 6. febrúar tekur við ráðstefnudagur UTmessunnar sem er ætlaður fagfólki í upplýsingatækni og þeim sem hafa sérstakan áhuga á greininni. Þar koma saman sérfræðingar til að ræða nýjustu lausnir, strauma og þróun í tækniheiminum. Samhliða ráðstefnunni verður sýningarsvæði þar sem helstu tölvu og tæknifyrirtæki landsins kynna nýjungar sínar. Í lok dags verða Upplýsingatækniverðlaun Ský afhent, sem er orðinn fastur og eftirvæntingarfullur liður í dagskránni.
Dagskrá 7. febrúar
Laugardaginn 7. febrúar er síðan tæknidagurinn haldinn, sannkölluð hátíð fyrir alla sem vilja upplifa töfra tækninnar. Þá opnast dyrnar fyrir almenning og gestir geta gengið á milli glæsilegra bása, prófað nýjustu tæknilausnir, tekið þátt í leikjum og getraunum og fengið innblástur fyrir framtíðina. Aðgangur að tæknideginum er ókeypis og eru bæði ungir sem aldnir hvattir til að mæta og gera sér glaðan dag.
Markmið UTmessunnar er að sýna hversu kraftmikill og fjölbreyttur tæknigeirinn á Íslandi er og um leið að vekja áhuga á tölvu og tæknigreinum sem mögulegum framtíðarstörfum. Með blöndu af fróðleik, upplifun og skemmtun hefur UTmessan fest sig í sessi sem einn mikilvægasti vettvangur tækni á Íslandi.
Leikjamessa
Sérstök leikjamessa verður hluti af UTmessunni í Hörpu þar sem íslensk leikjafyrirtæki kynna verkefni sín og gestir fá tækifæri til að prófa nýja og spennandi leiki.




