
Þann 12. janúar fóru dularfull auglýsingaspjöld með áletruninni „We belong together“ að birtast í New York, Berlín, Manchester og víðar. Aðdáendur Harry Styles töldu þar vera á ferðinni fyrstu vísbendingu um nýja tónlist frá söngvaranum, sem hefur verið í hléi frá útgáfu í tæp fjögur ár. Myndefnið var sótt í síðustu heimsferð hans árið 2023 og kveikti strax miklar vangaveltur meðal aðdáenda.
Harry Styles’ WE BELONG TOGETHER poster in NYC has already been covered by League Of Legends ads. pic.twitter.com/YgUVFZ35Gi
— 🏁 (@concertleaks) January 12, 2026
Sama dag tóku að birtast veggspjöld tengd League of Legends sem í sumum tilfellum voru límd yfir auglýsingar Styles. Slagorð leikjarins fyrir Demacia-þemað uppfærslu árið 2026, „Stand together“, þótti óþægilega líkt skilaboðum Styles-spjaldanna og margir töldu útgefandann Riot Games hafa gripið tækifærið til að fá athygli með óhefðbundnum hætti. Riot hafði þegar verið sýnilegt í borgarumhverfinu, meðal annars með stórri veggmynd af Garen í Brooklyn í New York.
NEW YORK LEAGUE OF LEGENDS FANS 📍Brooklyn, NY (40.706573, -73.922654)
Celebrate this new season of Demacia with us! @LeagueOfLegends #ForDemacia pic.twitter.com/a3w0qqUMkZ
— Riot Sab (@Sabby) January 7, 2026
Viðbrögð aðdáenda Harry Styles létu ekki á sér standa. Á samfélagsmiðlum lýstu aðdáendur Harry Styles, jafnan nefndir Harries, yfir óánægju sinni og töldu auglýsingarnar óvirðingu við listamanninn. Ein Twitter-færsla vakti sérstaka athygli þar sem gagnrýnt var hvernig „nördalegir karlar“ væru að yfirtaka rými sem konur hefðu áður tekið sér. Á TikTok birti áhrifavaldurinn Stephaniemiec, sem hefur yfir 260 þúsund fylgjendur, myndband þar sem hún og vinkona hennar fjarlægja League of Legends spjöldin af veggnum og sögðust hafa „bjargað Harry“.
@stephaniemiec AT HARRYS POSTER IN NYC IM SCREAMING HOW IS THIS REAL LIFE 😭♥️ #harrystyles #webelongtogether #foreverforever #hslot #loveontour ♬ original sound – Manekha
Úr varð orðaskipti og hnyttnar athugasemdir milli tveggja aðdáendahópa sem fáir höfðu ímyndað sér að mættust með þessum hætti árið 2026. Þó vissulega séu til League of Legends spilarar sem hlusta á Harry Styles virðist samstarf milli poppstjörnunnar og tölvuleiksins afar ólíklegt, þrátt fyrir að leikurinn hafi áður unnið með stórum nöfnum á borð við Lil Nas X, Linkin Park og Twenty One Pilots.
Þess má þó geta að League of Legends á sér marga óvænta aðdáendur úr heimi tónlistar og íþrótta. Kanadíska poppstjarnan Justin Bieber hefur opinberlega lýst dálæti sínu á Teemo, meðan breski rapparinn AJ Tracey hefur ítrekað sagst eiga hvert einasta „skin“ í leiknum og vísar jafnvel í hann í textum sínum. Þá er bandaríski tennismaðurinn Taylor Fritz meðal efstu tólf prósenta League of Legends spilara á heimsvísu, sem sýnir að aðdráttarafl leiksins nær langt út fyrir hefðbundinn rafíþróttaheim.
yo @LeagueOfLegends i have every skin i can possibly buy, but when are we gonna make a teemo skin 🤔
— aj tracey (@ajtracey) October 18, 2023
Óvæntur árekstur Harry Styles og League of Legends hefur því orðið að skemmtilegu dæmi um hvernig poppmenning og rafíþróttir geta rekist saman á óvæntum stöðum, jafnvel á auglýsingaveggjum stórborga.



