Um helgina fór fram ungmennamót í Rafíþróttum þar sem tæplega 70 keppendur frá 8 aðildarfélögum tókust á í Fortnite og Minecraft. Mótið gekk vel og fékk mikið lof frá keppendum, þjálfurum og aðstandendum.
Keppnin hófst á laugardeginum með Minecraft þrautakeppni, og þar á eftir var fyrri hluti í Fortnite einstaklings- og liðakeppni. Á sunnudeginum fór fram Minecraft hönnunarkeppni, en síðan var spilaður seinni hlutinn í einstaklings- og liðakeppni í Fortnite. Deginum lauk síðan með verðlaunaafhendingu, þar sem Íþróttamálaráðherra, Inga Sæland, afhendi sigurvegurum mótsins verðlaun.

Að þessu sinni voru þátttakendur frá eftirfarandi aðildarfélögum RÍSÍ: HK, Breiðablik, Fylkir, FH, Ármann, Rafíþróttadeild Mosfellsbæjar, UMF Sindri og Rafíþróttaklúbburinn í Hveragerði. Iðkendur UMF Sindra tóku þátt rafrænt frá Höfn, en það var góð prufukeyrsla á svona fjar-þátttöku í ungmennamóti, sem skiptir miklu máli til að koma til móts við þær fjölmörgu rafíþróttadeildir og iðkendur á landsbyggðinni.
Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, segir stuðninginn við mótið skipta sköpum fyrir áframhaldandi uppbyggingu ungmennastarfs í rafíþróttum.
„Fyrir hönd RÍSÍ og allra þeirra sem komu að mótinu vil ég þakka innilega fyrir þann stuðning sem veittur var. Hann gerir okkur kleift að halda þessi ungmennamót, sem eru gríðarlega mikilvægur þáttur í ungmennastarfi rafíþrótta hér á landi,“
segir Jökull.
Eftirfarandi ungmenna stóðu upp úr sem sigurvegarar á mótinu:
Minecraft Þrautakeppni
1. sæti: Kristinn Jónsson – Ármann
Minecraft Byggingarkeppni
1. sæti: Fróði Hákonarson – Breiðablik
Fortnite Solo – 8-10 ára
1. sæti: Hjálmar Sigurður Hauksson – FH
2. sæti: Baldur Freyr Snorrason – FH
3. sæti: Oddur Hersveinn – Ármann
Fortnite Solo – 11-16 ára
1. sæti: Brimir Leó Bjarnason- FH
2. sæti: Þorlákur Gottskálk Guðfinnsson – FH
3. sæti: Sigurjón Bjarni Óskarsson – Hveragerði
Fortnite Duo (Liðakeppni) – Yngri Aldursflokkur 8-10 ára
1. sæti: Kári Hrafn og Oddur Hersveinn – Ármann
2. sæti: Baltasar Ingi Sigurðsson og Dalía Von Gunnarsdóttir – FH
3. sæti: Kári Ragnarsson og Páll Eysteinn – FH
Fortnite Duo (Liðakeppni) – Eldri Aldursflokkur 11-16 ára
1. sæti: Þorlákur Gottskálk Guðfinnsson og Brimir Leó Bjarnason – FH
2. sæti: Alexander Orri Eiríksson og Benedikt Nóel Benediktsson – FH
3. sæti: Hilmar Bjarni Gunnarsson og Tómas Gíslason – Hveragerði
Myndir: Rafíþróttasamband Íslands

















