Erik Shokov, betur þekktur sem Erik „shoke“ Shokov, eigandi og stofnandi Counter-Strike liðsins CYBERSHOKE, hefur veitt innsýn í kostnað og tekjur rafíþróttaliðs með því að birta opinberlega tölur um útgjöld og tekjur liðsins síðustu tvö og hálft ár. Slík gagnsæi er óalgengt í rafíþróttum, þar sem rekstrartölur liða eru jafnan haldnar leyndum.
Í færslum á samfélagsmiðlinum X greinir Erik Shokov frá því að CYBERSHOKE hafi varið um 130 milljónum ísl. króna í rekstur á tímabilinu. Þar kemur fram að stærsti útgjaldaliðurinn sé laun og greiðslur til leikmanna og starfsfólks, sem nema vel yfir helmingi af heildarútgjöldunum. Þetta undirstrikar hversu mannaflafrekur rekstur rafíþróttaliðs er, jafnvel á svokölluðu tier 2 stigi í Counter-Strike.
CYBERSHOKE Esports budget over ~2.5 years:
Salaries & compensation — $504,411
Player buyouts — $181,700
Team house rent — $126,625
Bootcamps — $48,568
LAN travel — $19,000
Taxes & legal — $49,040
Jerseys — $8,921, psychologist — $4,400
Total: $942,675 pic.twitter.com/7zMbT0hi9t— Erik Shokov (@shokeCS) January 25, 2026
Í annarri færslu beinir Shokov sjónum að tekjuhlið rekstrarins og lýsir þar helstu tekjustoðum liðsins. Tekjur CYBERSHOKE hafa meðal annars komið frá styrktarsamningum, sölu leikmanna, verðlaunafé úr mótum og sölu á keppnistreyjum liðsins. Þrátt fyrir þessa fjölbreyttu tekjustrauma sýna tölurnar að reksturinn hafi verið í mínus um 40 milljónir króna á sama tímabili.
CYBERSHOKE Esports revenue over ~2.5 years:
2023: $90,528
2024: $282,577
2025: $247,005
Total revenue: $620,110Included: sponsorship contracts, player transfers, prize money, and jersey sales. Overall financial result for the period: –$322,565 pic.twitter.com/5URWGXS2vp
— Erik Shokov (@shokeCS) January 27, 2026
Upplýsingarnar varpa skýru ljósi á þær áskoranir sem mörg rafíþróttalið standa frammi fyrir, jafnvel þau sem hafa náð stöðugri fótfestu á alþjóðavettvangi. Frásögn Shokovs sýnir að þrátt fyrir marga tekjustofna getur verið afar erfitt að halda rekstrinum sjálfbærum, sérstaklega þegar launakostnaður vegur svo þungt.
CYBERSHOKE hefur undanfarin ár verið fastur liður í tier 2 umhverfi Counter-Strike og telst stöðugt keppnislið. Opinberun eigandans á þessum tölum gæti orðið mikilvægt innlegg í umræðu um raunverulegan kostnað við rekstur rafíþróttaliða og sjálfbærni greinarinnar til lengri tíma.
Myndir: x.com / Erik Shokov




