Rafíþróttasamband Íslands hefur verið skráð sem fjölmiðlaveita hjá Fjölmiðlanefnd og miðillinn „Rafíþróttir“ jafnframt skráður sem fjölmiðill samkvæmt lögum um fjölmiðla nr. 38/2011. Um er að ræða mikilvæg tímamót fyrir rafíþróttir á Íslandi, þar sem starfsemi sambandsins fær nú formlega stöðu innan íslensks fjölmiðlaumhverfis.
Samkvæmt tilkynningu nefndarinnar liggja upplýsingar sem skráningin byggir á aðgengilegar á vef Fjölmiðlanefndar í samræmi við 21. grein fjölmiðlalaganna. Skráningin staðfestir að dagskrárgerð og miðlun efnis á vegum sambandsins falli undir skilgreiningu fjölmiðlaveitu og lúti þar með þeim reglum og skyldum sem lögin kveða á um.
Í tengslum við skráninguna hefur Rafíþróttasamband Íslands sett fram ítarlega dagskrárstefnu sem gildir um alla dagskrárgerð, útsendingar og miðlun efnis á vegum sambandsins. Þar er meðal annars kveðið á um að dagskráin skuli þjóna almannahagsmunum með því að miðla hlutlausri, áreiðanlegri og faglegri umfjöllun um rafíþróttir og tengd málefni á Íslandi. Stefnt er að því að efla upplýsta umræðu, auka skilning almennings á samfélagslegu og menningarlegu hlutverki rafíþrótta og stuðla að jákvæðri þróun greinarinnar.
Dagskrá sambandsins mun meðal annars taka til útsendinga frá rafíþróttamótum, fræðslu- og kynningarefnis, viðtala og umræðuþátta. Einnig verður lögð áhersla á efni sem varpar ljósi á félagslegt, menntunarlegt og heilsufarslegt gildi rafíþrótta, auk dagskrár sem höfðar sérstaklega til barna og ungmenna.
Í stefnunni er jafnframt lögð rík áhersla á sjálfstæði dagskrárgerðar. Ákvarðanir um efni, framsetningu og áherslur skulu teknar á faglegum forsendum og ekki mótast af utanaðkomandi hagsmunum, hvort sem um er að ræða fjárhagslega, pólitíska eða viðskiptalega aðila. Markmiðið er að tryggja trúverðugleika og fagmennsku í allri umfjöllun.
Einnig er fjallað sérstaklega um ábyrgð gagnvart börnum og ungmennum, vernd persónuupplýsinga og trúnað við heimildarmenn og viðmælendur. Allir sem koma að dagskrárgerð fyrir sambandið skulu starfa í samræmi við siðareglur þess og gæta virðingar, kurteisi og fagmennsku í störfum sínum.
Ritstjóri eða dagskrárstjóri ber faglega ábyrgð á dagskrá og framkvæmd stefnunnar. Stjórn sambandsins skipar þann ábyrgðaraðila en hefur ekki afskipti af daglegri dagskrárgerð eða efnisvali. Með því fyrirkomulagi er leitast við að tryggja sjálfstæði, fagmennsku og gagnsæi í starfsemi miðilsins.




